Skoðun

Börn eftir pöntun Fæðingar­or­lofs­sjóðs

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Á umliðnum árum hefur mikið verið rætt um þær áskoranir sem fylgja öldrun þjóðarinnar og að fæðingum fari fækkandi. Í ljósi þessa þarf að huga að því umhverfi sem við sköpum ungu fólki sem kýs að stofna til fjölskyldu, svo sem er varðar fæðingarorlof, leikskólamál og fleira. Augljóslega eru margir og mismunandi þættir sem hafa áhrif á það hvort og hvenær fólk eignast börn. Hlutverk kerfisins á þó að vera það að auðvelda ungu fólki að eignast börn og verkefnið sem fylgir í kjölfarið sérstaklega ef vilji er til að fjölga landsmönnum. Í því ljósi skýtur sérlega skökku við að fólki sem eignast börn með stuttu millibili sé í raun refsað fjárhagslega.

Íslenska fæðingarorlofskerfið er að mörgu leyti gott og þegar hafa verið tekin mikilvæg skref til úrbóta. Fæðingarorlofið hefur t.a.m. verið lengt, greiðsluþakið hækkað, betur hefur verið komið til móts við fjölburaforeldra og réttindi vegna veikinda á meðgöngu styrkt. Allt er þetta til þess fallið að styðja við barnafjölskyldur og jafnrétti foreldra en lengi má gott bæta.

Ég, ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hef lagt fram frumvarp sem ætlað er að koma í veg fyrir að foreldrar lendi í því að fá skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði vegna þess að börn þeirra fæðast með stuttu millibili. Þetta getur m.a. gerst einfaldlega vegna þess að foreldrar sjá sér þann kost nauðugan að dreifa fyrra fæðingarorlofi yfir lengri tíma til að brúa bilið á meðan beðið er eftir leikskólaplássi. Sú ákvörðun á ekki að koma þeim í koll þegar næsta barn fæðist.

Í frumvarpinu er lagt til að foreldrar sem eignast annað barn innan tiltekins tíma haldi fyrri greiðsluviðmiðum, uppfærðum í samræmi við launaþróun, við útreikning fæðingarorlofsgreiðslna, ef það er þeim hagstæðara. Sömuleiðis er tekið á þeirri stöðu sem ungt fólk kann að finna sig í við barneignir hafi það nýlokið námi og rétt stigið sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Reiknireglur fæðingarorlofs eiga ekki verða til þess að barneignir séu settar á ís eða, það sem verra er, koma niður á fjölskyldum og börnum þeirra.

Breytingarnar kosta sannarlega pening en það er samfélaginu ekki síður kostnaðarsamt ef ungt fólk frestar því að eignast börn eða hættir við að eignast fleiri, kerfisins vegna.

Ein af stærstu áskorunum næstu áratuga er breytt aldurssamsetning þjóðarinnar. Þótt hún verði auðvitað ekki leyst með einni lagabreytingu er um að gera að byrja strax og vinda ofan af þeim óþarfa fjárhagslegu hindrunum sem blasa við fólki sem vill eignast börn.

Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa líka lagt fram tillögu um að endurskoða þessi viðmið. Við erum því greinilega sammála um að vandinn sé til staðar og ég vænti stuðnings þeirra við málið.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×