Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar 8. október 2026 15:01 Á umliðnum árum hefur mikið verið rætt um þær áskoranir sem fylgja öldrun þjóðarinnar og að fæðingum fari fækkandi. Í ljósi þessa þarf að huga að því umhverfi sem við sköpum ungu fólki sem kýs að stofna til fjölskyldu, svo sem er varðar fæðingarorlof, leikskólamál og fleira. Augljóslega eru margir og mismunandi þættir sem hafa áhrif á það hvort og hvenær fólk eignast börn. Hlutverk kerfisins á þó að vera það að auðvelda ungu fólki að eignast börn og verkefnið sem fylgir í kjölfarið sérstaklega ef vilji er til að fjölga landsmönnum. Í því ljósi skýtur sérlega skökku við að fólki sem eignast börn með stuttu millibili sé í raun refsað fjárhagslega. Íslenska fæðingarorlofskerfið er að mörgu leyti gott og þegar hafa verið tekin mikilvæg skref til úrbóta. Fæðingarorlofið hefur t.a.m. verið lengt, greiðsluþakið hækkað, betur hefur verið komið til móts við fjölburaforeldra og réttindi vegna veikinda á meðgöngu styrkt. Allt er þetta til þess fallið að styðja við barnafjölskyldur og jafnrétti foreldra en lengi má gott bæta. Ég, ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hef lagt fram frumvarp sem ætlað er að koma í veg fyrir að foreldrar lendi í því að fá skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði vegna þess að börn þeirra fæðast með stuttu millibili. Þetta getur m.a. gerst einfaldlega vegna þess að foreldrar sjá sér þann kost nauðugan að dreifa fyrra fæðingarorlofi yfir lengri tíma til að brúa bilið á meðan beðið er eftir leikskólaplássi. Sú ákvörðun á ekki að koma þeim í koll þegar næsta barn fæðist. Í frumvarpinu er lagt til að foreldrar sem eignast annað barn innan tiltekins tíma haldi fyrri greiðsluviðmiðum, uppfærðum í samræmi við launaþróun, við útreikning fæðingarorlofsgreiðslna, ef það er þeim hagstæðara. Sömuleiðis er tekið á þeirri stöðu sem ungt fólk kann að finna sig í við barneignir hafi það nýlokið námi og rétt stigið sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Reiknireglur fæðingarorlofs eiga ekki verða til þess að barneignir séu settar á ís eða, það sem verra er, koma niður á fjölskyldum og börnum þeirra. Breytingarnar kosta sannarlega pening en það er samfélaginu ekki síður kostnaðarsamt ef ungt fólk frestar því að eignast börn eða hættir við að eignast fleiri, kerfisins vegna. Ein af stærstu áskorunum næstu áratuga er breytt aldurssamsetning þjóðarinnar. Þótt hún verði auðvitað ekki leyst með einni lagabreytingu er um að gera að byrja strax og vinda ofan af þeim óþarfa fjárhagslegu hindrunum sem blasa við fólki sem vill eignast börn. Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa líka lagt fram tillögu um að endurskoða þessi viðmið. Við erum því greinilega sammála um að vandinn sé til staðar og ég vænti stuðnings þeirra við málið. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Fæðingarorlof Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar