Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar 9. október 2026 11:16 Vinur minn Victor Guðmundsson skrifaði góða grein undir yfirskriftinni „Heilbrigð þjóð þarf gott samtal“. Ég er honum hjartanlega sammála um mikilvægi þess að hlusta hvert á annað og vera opin fyrir nýjum hugmyndum. En mig langar að bæta aðeins við þetta samtal. Við búum að mörgu leyti við gott heilbrigðiskerfi og þar starfar frábært fólk. En ef við ætlum að gera gott betra þurfum við líka að þora að spyrja erfiðra spurninga og skoða hvort við séum að nýta þá þekkingu og þá möguleika sem við höfum á besta hátt. Hver ber í raun ábyrgð á heilsu einstaklingsins og hversu mikið vald hefur hann sjálfur? Við höfum byggt upp kerfi þar sem læknirinn er í mörgum tilfellum orðinn hliðvörður að þjónustunni. Fólk þarf að komast til læknis til að fá rannsóknir, ráðgjöf eða komast áfram innan kerfisins. En þarf þetta alltaf að vera svona? Af hverju þarf fólk stundum að berjast fyrir því að fá tíma hjá lækni eða komast í blóðprufu? Og af hverju þarf læknir, sem hefur varla tíma til að fara yfir niðurstöðurnar með mér, að bera ábyrgð á blóðprufunni minni? Það hljóta að vera til aðrar leiðir. Hvað ef hjúkrunarfræðingar, lífeindafræðingar eða aðrir fagaðilar á heilsugæslustöðvum gætu farið yfir niðurstöður með einstaklingnum og metið næstu skref? Læknir kæmi svo að málinu þegar þörf væri á hans sérþekkingu. Auðvitað þarf að tryggja faglega ábyrgð og rétt mat á rannsóknum. En gætum við ekki með þessu bæði létt álaginu af læknum og gefið einstaklingnum meira vald og ábyrgð á eigin heilsu? Nýtum þekkingu fleiri fagstétta Á heilsugæslustöðvum starfa nú þegar ýmsir fagaðilar, en leiðin til þeirra liggur oftast í gegnum lækni. Af hverju getur einstaklingur sem hringir á heilsugæsluna ekki einfaldlega pantað tíma beint hjá þeim fagaðila sem hann telur sig þurfa á að halda þá stundina? Ef vandinn snýr að stoðkerfinu, af hverju ekki beint til sjúkraþjálfara? Ef hann snýr að næringu, af hverju ekki beint til næringarfræðings? Og ef um er að ræða streitu eða andlega vanlíðan, af hverju ekki beint til sálfræðings, án þess að þurfa fyrst tilvísun frá lækni? Við gætum jafnvel skoðað hlutverk fleiri fagstétta, svo sem osteópata, þar sem þekking, öryggi og gagnreyndur árangur styðja það. Þetta snýst ekki um að gera lítið úr læknum. Þvert á móti. Þetta snýst um að nýta þeirra mikilvægu sérþekkingu betur og leyfa öðrum fagstéttum að taka meiri þátt. Við verðum líka að þora að ræða mistökin Læknisfræðin hefur skilað ótrúlegum framförum en hún er ekki óskeikul. Í bandarískri rannsókn frá 2014 (BMJ Quality & Safety) var áætlað að um 5% fullorðinna einstaklinga yrðu fyrir rangri eða seinkaðri sjúkdómsgreiningu árlega í göngudeildarþjónustu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur einnig bent á umfang fyrirbyggjanlegs skaða vegna lyfjameðferðar. Þessar tölur segja ekki til um stöðuna á Íslandi en minna okkur á að alltaf er hægt að gera betur. Hversu oft er gripið til lyfja þegar aðrar leiðir gætu hentað? Hversu oft er verið að meðhöndla einkenni án þess að skoða nægilega vel hvað liggur að baki? Og hversu oft upplifir einstaklingurinn að ekki sé hlustað á hann? Þetta eru spurningar sem við eigum að geta rætt án þess að einhver upplifi það sem árás. Erum við að byggja heilbrigðiskerfi eða sjúkdómakerfi? Við tölum mikið um læknaskort, biðlista, lyf og sjúkrahús. En hvað með forvarnir, næringu, hreyfingu, svefn og andlega líðan? Erum við að leggja nægilega mikla áherslu á að hjálpa fólki að halda heilsu, eða bíðum við of oft þar til það veikist? Hvað ef við myndum prófa nýtt fyrirkomulag á einni eða tveimur heilsugæslustöðvum, með sterkari þverfaglegum teymum, beinu aðgengi að fagaðilum og meiri þátttöku einstaklinganna sjálfra? Síðan myndum við einfaldlega mæla árangurinn. Styttast biðtímar? Minnkar álag á lækna? Batnar líðan fólks? Nýtast fjármunirnir betur? Kannski virkar sumt og annað ekki. En við komumst ekki að því nema við þorum að prófa. Gott samtal þarf að leiða til breytinga Ég tek heilshugar undir með Victor að heilbrigð þjóð þurfi gott samtal. En samtalið þarf líka að snúast um hver hefur valdið, hver ber ábyrgð og hvort við séum tilbúin að breyta gömlum venjum. Við eigum að hlusta á lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk, en ekki síður á einstaklingana sem hafa upplifað að þurfa að berjast fyrir þjónustu eða að ekki sé hlustað á þá. Við þurfum ekki að rífa niður það sem er gott. Við þurfum að nýta betur þá þekkingu sem við höfum, gefa fólki meiri möguleika á að taka þátt í eigin heilsu og vera óhrædd við að prófa nýjar leiðir. Því markmiðið er ekki að verja kerfið eins og það er í dag. Markmiðið er að bæta heilsu fólksins sem það á að þjóna. Til þess þurfum við ekki bara fleiri lækna, heldur líka gott og vel menntað heilbrigðisstarfsfólk úr ólíkum fagstéttum, sem fær að nýta þekkingu sína og vinna saman að því sem skiptir mestu máli – heilsu einstaklingsins. Gerum gott betra. En til þess verðum við að þora að horfa á allar hliðar. Höfundur er M.Sc næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elísabet Reynisdóttir Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ríkið stal þremur árum frá ungum föður og syni hans Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar Skoðun Hvenær á að segja upp kjarasamningum? Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun Glassúrfólkið Ólöf Skaftadóttir,Kristín Gunnarsdóttir,Hjörvar Hafliðason,Birkir Karl Sigurðsson,Leifur Þorsteinsson,Þórarinn Hjartarson,Gísli Freyr Valdórsson,Gurrý Jónsdóttir,Lína Birgitta,Sólrún Diego skrifar
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar