Enski boltinn

Gakpo og Isak missa af stór­leiknum

Sindri Sverrisson skrifar
Cody Gakpo varð að fara meiddur af velli gegn Serbíu á dögunum.
Cody Gakpo varð að fara meiddur af velli gegn Serbíu á dögunum. Getty/Roy Lazet

Liverpool endurheimti þá Alexander Isak og Cody Gakpo meidda úr landsleikjum og þeir missa því af stórleiknum við topplið Manchester City á sunnudaginn, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Leikurinn er sá fyrsti hjá City eftir birtingu niðurstöðu óháðrar nefndar úrvalsdeildarinnar um að félagið hefði framið yfir hundrað brot tengd fjármálareglum deildarinnar.

Sú niðurstaða var birt í landsleikjahléinu en Liverpool-menn urðu einnig fyrir áfalli í hléinu þegar Hollendingurinn Gakpo meiddist í ökkla og Svíinn Isak meiddist í læri. Þetta staðfesti Andoni Iraola á blaðamannafundi í dag.

„Því miður fyrir okkur þá meiddust þeir báðir í landsleikjahléinu. Sem félagsliðaþjálfari þá er maður alltaf að bíða eftir að þessir leikir klárist og að læknirinn hringi ekki með slæmar fréttir. Í þessu tilviki vorum við óheppnir með bæði Isak og Cody. Þeir eru meiddir og verða ekki með á sunnudaginn,“ sagði Iraola.

Blaðamaður spurði hann þá út í hinn 21 árs gamla Walesverja Lewis Koumas og virtist þykja líklegt að hann fengi að sýna sig og sanna í stórleiknum:

„Koumas hefur þegar sýnt með mikilvægum mínútum að hann er klár í slaginn og við erum með fleiri leikmenn sem geta leyst þessar stöður,“ sagði Iraola.

Leikur Liverpool og Manchester City er klukkan 15:30 á sunnudag, í beinni útsendingu á Sýn Sport. Útsendingin hefst 25 mínútum fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×