Lífið

Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekki bara eineygð bifreið.
Ekki bara eineygð bifreið.

Þættirnir Dagbók lögreglu eru komnir í loftið á Sýn+ en þeir byggja á raunverulegum útköllum sem hafa komið fyrir í dagbók lögreglunnar.

Í öðrum þættinum var sýnt frá atviki þar sem eineygður próflaus ökumaður reyndi að flýja af vettvangi. Hann var stöðvaður þar sem bifreiðin var eineygð en svo kom í ljós að ökumaðurinn sjálfur var það líka.

Margir af þekktustu leikurum landsins koma við sögu í fjölbreyttum og ófyrirsjáanlegum útköllum í þáttunum. Á meðal leikara eru Aron Már Ólafsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur Júlíusson, Saga Garðarsdóttir, Vigdís Halla Birgisdóttir, Jörundur Ragnarsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Leikstjórn er í höndum Ólafs Ásgeirssonar og framleiðendur eru Fannar Scheving Edwardsson og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir.

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti en þeir koma alltaf inn á Sýn+ á föstudagskvöldum og eru sýndir á Sýn+ rásinni á myndlyklum á föstudagskvöldum.

Klippa: Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.