Fótbolti

Aflýstu leik vegna skutlukasts

Andri Broddason skrifar
Vallarstarfsmenn Rayo Vallecano unnu hörðum höndum að því að hreinsa völlinn.
Vallarstarfsmenn Rayo Vallecano unnu hörðum höndum að því að hreinsa völlinn. Florencia Tan Jun/Getty Images

Rayo Vallecano átti að mæta Athletic Club í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leiknum var aflýst. Stuðningsmenn Rayo Vallecano köstuðu skutlum og gúmmíboltum inn á völlinn til að mótmæla eiganda félagsins.

Leikurinn í dag átti að vera fyrsti leikur Rayo Vallecano á tímabilinu á heimavelli liðsins en honum var lokað rétt áður en tímabilið hófst vegna sjúkdóma og slysahættu. Stuðningsmenn félagsins sökuðu eigandann um vanrækslu á vellinum.

Einnig hefur eigandi félagsins verið gagnrýndur fyrir að nútímavæða ekki félagið og finnst stuðningsmönnum að það sé búið að dragast aftur úr. Raul Martin Presa er eigandi félagsins og er orðin hefð hjá stuðningsmönnum að kalla á þrettándu mínútu allra leikja „Presa farðu nú.“

Í leik dagsins ákváðu stuðningsmenn liðsins að breyta til og í staðinn fyrir að kalla þá var kastað skutlum og gúmmíboltum á völlinn. Dómari leiksins stöðvaði leikinn á meðan vallarstarfsmenn hreinsuðu völlinn eins hratt og þeir gátu.

Þegar leikurinn gat loks hafist aftur var dóti aftur kastað inn á völlinn og var þá dómarinn búinn að fá sig fullsaddan og flautaði hann leikinn af. Eftir leikinn hafði Athletic Club samband við stuðningsmenn liðsins sem mættu á leikinn og ætluðu að endurgreiða þeim miðann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×