Innlent

„Þetta var al­gjör­lega magnað“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Júlíus segist ekki hafa séð svona marga hvali saman áður.
Júlíus segist ekki hafa séð svona marga hvali saman áður.

Júlíus Garðar Þorvaldsson áhugaljósmyndari segist ekki hafa vitað hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann rak augun í stóra grindhvalavöðu úti við ströndina við Hólmavík. Hann dreif sig út á bát og náði myndbandi af vöðunni.

„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi í Hólmavík og áhugaljósmyndari hefur áður sent fréttastofu myndefni af hvölum en líklega aldrei eins mörgum í einu og núna.

„Ég hef heldur aldrei komist svona nálægt þeim. Við drifum okkur bara út á bátinn til að ná þeim. Þetta var algjörlega magnað.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×