Enski boltinn

Til á­taka kom eftir stór­leikinn á Anfi­eld

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Liverpool og Manchester City í gær
Frá leik Liverpool og Manchester City í gær Vísir/Getty

Lögreglan þurfti að beita piparúða eftir stórleik Liverpool og Manchester City á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar upp úr sauð fyrir utan leikvanginn.

Sagt er frá málinu á vef Manchester Evening News en Manchester City fór með 3-0 sigur af hólmi í leiknum gegn heimamönnum í liði Liverpool. Mikil ólga ríkti fyrir leik sökum sektar Manchester City í umfangsmiklu dómsmáli sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn félaginu fyrir brot á fjármálareglum deildarinnar. 

Manchester Evening News segir að til átaka hafi komið milli lögreglunnar og stuðningsmanna eftir leik þar sem að lögreglan stóð vörð á meðan stuðningsmenn Manchester City komu sér út af og frá leikvanginum. 

Þá var þá sem að lögreglan tók upp kylfur og beitti piparúða gegn stuðningsmönnum Liverpool sem hafi neitað að draga sig í hlé. 

Ekki hafa borist fregnir af því hvort einhver hafi verið handtekinn í tengslum við ólætin eftir leik en af myndböndum á samfélagsmiðlum að dæma má sjá að andrúmsloftið á Anfield hafi verið spennuþrungið. 

@marca.com 🚔 Gas pimienta, disturbios y detenidos tras el Liverpool - Manchester City 📹 @futbolconkarma y @jefferaudiovisuals #PremierLeague #EPL #deportesentiktok ♬ sonido original - Diario MARCA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×