Innlent

Hlaut fyrstu verð­laun fyrir rann­sókn í sjúkra­þjálfun

Atli Ísleifsson skrifar
Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir frá Háskóla Íslands hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn sína. Í öðru sæti varð fulltrúi háskólans í Brussel í Belgíu og i þriðja sæti fulltrúi háskólans í Utrecht í Hollandi.
Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir frá Háskóla Íslands hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn sína. Í öðru sæti varð fulltrúi háskólans í Brussel í Belgíu og i þriðja sæti fulltrúi háskólans í Utrecht í Hollandi. Aðsend

Íslensk meistaraprófsrannsókn í sjúkraþjálfun hlaut um helgina fyrstu verðlaun evrópskra samtaka um rannsóknir á sviði sjúkraþjálfunar á háskólastigi. Höfundur rannsóknarinnar, Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir, hlaut verðlaunin fyrir lokaverkefni sitt frá námsbraut í sjúkraþjálfun frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.

Verðlaunin voru veitt í borginni Tartu í Eistlandi á laugardag á rannsóknarþingi sem fram fór í Háskólanum í Tartu fyrir hagnýt heilbrigðisvísindi. Verðlaunin eru á vegum samtakanna Enphe, sem stendur fyrir „European network of physiotherapy in higher education“.

Alls voru 46 evrópsk rannsóknarverkefni valin til að keppa til úrslita. Fyrstu verðlaunin hlaut Dagbjört Ósk fyrir rannsókn á grindarbotnseinkennum íslenskra kvenna sem greindar hafa verið með vefjagigt. Í öðru sæti varð rannsókn frá háskólanum í Brussel í Belgíu en þriðja sæti hlaut rannsókn frá háskólanum í Utrecht í Hollandi.

„Það er bara gaman að fá viðurkenningu fyrir alla vinnuna sem fór í þessa rannsókn,“ sagði Dagbjört eftir að hafa tekið við verðlaununum en leiðbeinendur hennar voru doktor Kristín Briem og doktor Þorgerður Sigurðardóttir.

„Ég vona að verkefnið og niðurstöðurnar veki athygli þannig að fleiri kynni sér kvenheilsutengd vandamál og geti notað niðurstöðurnar til að hjálpa sér í starfi.“

Dagbjört segir einnig ánægjulegt að vera efst af þeim nærri fimmtíu verkefnum sem voru talin hæf til að vera send inn.

„Þetta voru allskonar rannsóknir sem voru með mjög mismunandi áherslur og með mjög flottum niðurstöðum einnig. Þannig að það gerir þetta ennþá betra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×