Lífið

Ís­land Banda­ríkjanna komið í kennslu­bækur

Jakob Bjarnar skrifar
Þó fólk á Íslandi hafi ekki gefið mikið fyrir hina nýstárlegu landafræði Trumps telja höfundar ítalskrar kennslubókar Ísland tilheyra landi hinna frjálsu.
Þó fólk á Íslandi hafi ekki gefið mikið fyrir hina nýstárlegu landafræði Trumps telja höfundar ítalskrar kennslubókar Ísland tilheyra landi hinna frjálsu. vísir/samsett

Svo virðist sem breytt heimskipan Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sú sem hann sló eftirminnilega fram á Truth Social og sýndi Grænland og Ísland sem hluta Bandaríkjanna, hafi náð meiri útbreiðslu en menn gátu ímyndað sér.

Fæstir hafa gefið mikið fyrir þessa nýstárlegu landafræði. Vísir heyrði í nemanda í ítölsku sem rak í rogastans þegar hann gluggaði í nýja kennslubók í tugnumálinu. Þar ber ekki á öðru en að Ísland teljist til Bandaríkjanna.

Um er að ræða bókina „A Lezione di italiano“ og höfundar eru Antonella Bolzoni og Pier Cesare. 

„Ég er í ítölsku B1 og var að fá þessa bók sem er fyrsta útgáfa, prentuð í febrúar 2026 frá útgáfufélagi í Flórens,“ segir nemandinn forviða.

Um er að ræða miðstig í ítölsku þar sem gengið er út frá því að nemendur skilji aðalatriði um kunnugleg efni sem tengjast vinnu, skóla og tómstundum. Þú átt að geta bjargað þér á ferðalögum og skrifað einfaldan texta um málefni sem þér eru kunn.

Ómögulegt er þó að fullyrða hvort um sé að ræða áhrif frá Trump eða hvort gervigreindin hafi verið nýtt til að setja saman kennslubókina. Spurningin sem um ræðir og sjá má að neðan snýr að því í hvaða heimsálfu þekkt minnismerki á borð við Taj Mahal og Frelsisstyttuna sé að finna. Vísað er til fimm heimsálfa í spurningunni og virðist ekki gerður greinarmunur á Suður- og Norður-Ameríku. 

Svona lítur landafræðin út í ítalskri kennslubók.

Menn hafa talið Truth Social hálfgert flopp en Trump stofnaði miðilinn ásamt öðrum 2022 eftir að hann hafði verið bannaður á Twitter og Facebook eftir árásina á þinghúsið. Þeir miðlar drógu bannið til baka en Trump vill hins vegar ekki sjá að viðra hugleiðingar sínar þar eftir bannið. Samkvæmt New York Times sækja 28 milljónir manna miðilinn heim mánaðarlega og áhrifin ná víða, meðal annars í ítalskar kennslubækur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.