Innlent

Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sigrún Þorsteinsdóttir hvetur fólk til að hreinsa lauf frá niðurföllum og úr rennum. Vatnið finni sér alltaf farveg.
Sigrún Þorsteinsdóttir hvetur fólk til að hreinsa lauf frá niðurföllum og úr rennum. Vatnið finni sér alltaf farveg. aðsend/vilhelm

Tilkynningar um tjón vegna veðursins hafa borist tryggingafélaginu VÍS. Sérfræðingur hjá félaginu segir mikilvægt að fólk hreinsi lauf frá niðurföllum og rennum til að reyna að koma í veg fyrir að vatn leki inn í hús.

Sigrún Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, segir að dagurinn fari rólega af stað en hún eigi von á því að tjónatilkynningar vegna veðursins berist félaginu um eða eftir helgi. 

Tryggingafélaginu barst tilkynning vegna foktjóns í morgun auk tilkynninga um að vatn utan frá hafi þrýst sér inn um sprungur og plötuskil og lekið inn í hús. Slíkt tjón er ekki bótaskylt og því um ansi leiðinleg tjón að ræða.

Hreinsa lauf

Sigrún segir mikilvægt að fólk hreinsi lauf frá niðurföllum og rennum til að reyna að koma í veg fyrir slíkt tjón.

„Við hvetjum fólk til að huga að því að það séu ekki laufblöð sem liggja yfir niðurföllum og við höfum líka aðeins verið að sjá þetta í tengslum við flöt þök á húsum en viljum náttúrulega auðvitað aldrei að einhver sé að leggja sig í hættu við að tékka á því en það er líka núna þegar laufið er svona mjög víða að það getur verið eitthvað sem liggur yfir niðurfalli og stoppar það að vatnið komi sína leið og þá finnur vatnið sér leið í gegnum hinar ýmsu sprungur sem geta leynst á húsinu.“

Sigrún hvetur fólk til að festa lausamuni.

„Eins líka náttúrulega bara hvetur maður fólk til að, eftir því sem veðrið gengur yfir landið og fer að snjóa og annað þvíumlíkt, að þeir sem neyðast til að fara eitthvað á milli staða hugi vel að því hvernig færð og veður er og síðan alls ekki leggja af stað á einhverjum sumardekkjum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×