Skoðun

Drónar: vinur eða ó­vinur?

Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar

Við Íslendingar erum í þekkingaruppbyggingu þessa dagana í öryggis og varnarmálum. Höfum við nú þegar séð að öryggis og varnarmál snerta víðari grunn en við töldum áður og þarft er að gera áætlanir og fjárfesta. Ákvarðanir sem við munum taka í öryggis-, varnar- og löggæslumálum á næstunni eru mikilvægar, kostnaðarsamar og snerta alla landsmenn.

Drónar eru gott dæmi um þróun umræðunnar um öryggis-, varnar- og löggæslumál yfir á ný svið. Þar er á ferðinni nýleg tækni sem þjónar bæði borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi, svokallað tvíþætt notagildi (dual-use). Tækni sem nýtist við leit og björgun, eftirliti með innviðum, við löggæslu og í atvinnulífinu svo sem í smalamennsku á haustin, en líka í stríðsátökum og sem ógnartæki. Drónar snerta þess vegna á fjölmörgum starfssviðum; tölvunarfræði, verkfræði, lögfræði, nýsköpun og öryggismál allt í senn. Vegna þess hve nýtt sviðið er þá eru engar rótgrónar hefðir um hverjir eigi heima við borðið.

Því er ánægjulegt að í næstu viku fari fram ráðstefna um dróna í Háskólanum í Reykjavík þar sem fólk úr ólíkum áttum stígur á stokk. Þar verða innlendir og erlendir fulltrúar löggæslu, iðnaðar, hugveitna, akademískra rannsókna og notenda að ræða tækifæri og áskoranir sem dróna tækni færir okkur í íslensku og alþjóðlegu samhengi, í nýsköpun og fyrir atvinnulífið. Áhersla verður lögð á þrennt, fyrsta lagi samþættingu dróna í samfélaginu, öðru lagi tvíþætt notagildi dróna og í þriðja lagi notkun dróna í raun. Robert Fintak mun flytja aðal erindið sem fjallar um frá dróna frá vígvelli til seiglu, hvernig ómönnuð kerfi með tvíþætt notkunargildi eru að endurskilgreina öryggi Evrópu. Robert er forstjóri og stofnandi fyrirtækja sem sérhæfa sig í ómönnuðum og sjálfvirkum kerfum, and-dróna tækni, vélmennum og vernd mikilvægra innviða. Róbert er einnig forseti pólska viðskiptaráðsins um ómönnuð kerfi (PISB) en Pólland er framarlega í drónatækni í Evrópu.

Hvet ég sérstaklega konur að skrá sig til leiks og taka þátt í umræðunni en ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem starfa við eða hafa áhuga á öryggismálum, vörnum, löggæslu, nýsköpun eða notkun dróna hvort sem er í opinberum rekstri, einkageiranum eða akademíu til þess að skoða hagnýta reynslu, nýjungar, rannsóknarniðurstöður og þarfir notenda. Vonandi sjáumst við á Nauthól og Háskólanum í Reykjavík en nauðsynlegt er að skrá sig hérna.

Höfundur er alþjóðastjórnmálafræðingur og situr í stjórn kvenna í alþjóðaöryggismálum (WIIS Iceland).




Skoðun

Sjá meira


×