Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Sindri Sverrisson skrifar 15. október 2026 20:08 Margir hafa gagnrýnt Lisandro Martínez fyrir ummælin í Madrid á þriðjudaginn á meðan aðrir hafa fagnað þeim. Getty/Florencia Tan Jun Lisandro Martínez fundaði með stjórnendum Manchester United og þjálfaranum Michael Carrick í dag og bað þá afsökunar á ummælum sínum eftir tapið gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld.
Samkvæmt frétt BBC fékk Martínez sekt vegna hegðunar sinnar í Madrid á þriðjudaginn. The Athletic hefur sömuleiðis eftir heimildarmönnum hjá United að nú sé málinu í raun lokið. Flest bendir því til þess að Martínez, eða Slátrarinn eins og hann er kallaður, verði áfram í leikmannahópi Carricks á sunnudaginn þegar United mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni en Carrick mun væntanlega svara því á blaðamannafundi á morgun. Martínez sagði United hafa sýnt metnaðarleysi í leikmannamálum í sumar en félagið hafði hægt um sig í leikmannakaupum og sótti til að mynda hvorki framherja né vinstri bakvörð þrátt fyrir augljósa þörf. Liðið kom sér aftur í Meistaradeild Evrópu með árangri síðustu leiktíðar en Martínez sagði úrslitin gegn Atlético endurspegla félagið og að hann hefði „búist við meiru“ frá Jason Wilcox, yfirmanni knattspyrnumála. Eins og fyrr segir bað Martínez stjórnendur afsökunar í dag en þetta staðfesti hann í færslu á Instagram í kvöld. „Í dag hitti ég stjórnendur félagsins og knattspyrnustjórann. Þetta var mjög jákvætt samtal þar sem við gátum skipst á skoðunum og rætt opinskátt um það sem gerðist eftir leikinn á þriðjudaginn. Allir vita að ég er ástríðufull manneskja og að ég lifi fyrir fótboltann af miklum krafti. Gremjan yfir tapinu varð til þess að ég lét tilfinningar mínar í ljós á stað og stund sem voru ef til vill ekki réttar, og á því vil ég biðjast afsökunar,“ skrifaði Martínez. Samningur miðvarðarins við United rennur út eftir þessa leiktíð. BBC segir að þó að litið sé svo á sem að málinu frá því á þriðjudagskvöld sé lokið þá hafi stjórnendur United ekki gert upp við sig hvort þeir vilji nýta sér réttinn sem þeir hafa til að framlengja samninginn um eitt ár. United hefur átt afar erfitt uppdráttar á leiktíðinni og er aðeins með sex stig í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, eftir sex umferðir.
Enski boltinn Manchester United Tengdar fréttir Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi yfir því að ná ekki þeim úrslitum sem við vildum öll,“ segir Manchester United-maðurinn Lisandro Martínez í yfirlýsingu á Instagram vegna þeirra miklu viðbragða sem hann fékk við ummælum sínum í Madrid í gærkvöld. 14. október 2026 22:29 Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Leikmenn Manchester United hafa verið duglegir við að koma sér í fréttirnar með ummælum eftir tap liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. 14. október 2026 10:02 Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bo Johansson er látinn Fótbolti Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Körfubolti Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira
Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi yfir því að ná ekki þeim úrslitum sem við vildum öll,“ segir Manchester United-maðurinn Lisandro Martínez í yfirlýsingu á Instagram vegna þeirra miklu viðbragða sem hann fékk við ummælum sínum í Madrid í gærkvöld. 14. október 2026 22:29
Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Leikmenn Manchester United hafa verið duglegir við að koma sér í fréttirnar með ummælum eftir tap liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær. 14. október 2026 10:02