Skoðun

Að njóta menningar og læra af henni – hvað er upp­byggi­leg rétt­vísi?

Kristín Skjaldardóttir og Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifa

Verðlaunaleikritið Högg (e. Punch) er nú til sýninga á fjölum Þjóðleikhússins. Það er dæmi um verk sem hægt er að njóta en um leið læra af – og kynnast nýjum leiðum sem geta stuðlað að betra samfélagi.

Sýningin Högg byggir á sannsögulegum atburði sem átti sér stað í Bretlandi árið 2011 og sýnir með áhrifamiklum hætti hvernig eitt högg getur breytt lífi einstaklinga. Bæði þess sem veitir höggið og þess sem verður fyrir því. Í þessu tilviki lést sá sem fékk þetta eina högg.

Mörg okkar myndu eflaust telja sanngjarnt að sá sem ber ábyrgð á slíkum verknaði þurfi að lifa með alvarlegum afleiðingum hans. En sagan sem Högg segir vekur jafnframt upp aðra og erfiðari spurningu: Þarf annað líf líka að fara forgörðum?

Foreldrar mannsins sem lést völdu aðra leið. Þau vildu ekki að enn eitt líf eyðilegðist vegna þess sem hafði gerst. Það þýddi ekki að þau gerðu lítið úr missi sínum eða því sem hafði verið gert. Þvert á móti. Þau vildu að sá sem olli skaðanum horfðist í augu við afleiðingar gjörða sinna, skildi hvaða áhrif þær höfðu haft og axlaði ábyrgð.

Þar kom uppbyggileg réttvísi inn í söguna.

En hvað er uppbyggileg réttvísi?

Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) er leið til að bregðast við skaða með ábyrgð, samtali og uppbyggingu að leiðarljósi. Í stað þess að einblína á það sem gerðist er sjónum beint að þeim sem urðu fyrir áhrifum þess sem gerðist og því sem þarf til að vinna úr afleiðingunum. Spurt er: Hver varð fyrir skaða? Hvaða áhrif hafði það sem gerðist? Hverjar eru þarfir þeirra sem málið varðar? Hver ber ábyrgð og hvað þarf til að skapa forsendur fyrir því að halda áfram?

Uppbyggileg réttvísi snýst ekki um að afsaka það sem gerðist, draga úr ábyrgð eða ætlast til fyrirgefningar. Þvert á móti snýst hún um að gangast við skaðanum sem varð, takast á við afleiðingarnar og axla ábyrgð á því sem gerðist.

Sá sem varð fyrir skaða fær tækifæri til að láta rödd sína heyrast, segja frá því hvaða áhrif atburðurinn hafði á hann og, þegar það á við, fá svör við spurningum sem annars gætu staðið ósvaraðar. Sá sem olli skaðanum þarf jafnframt að vera tilbúinn til að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna og axla ábyrgð á þeim.

Uppbyggileg réttvísi snýst um að gangast við því sem gerðist og skaðanum sem af því hlaust og styðja við þann sem olli skaðanum við að axla ábyrgð á gjörðum sínum.

Aðferðin er ekki lausn á öllum vanda og hentar ekki öllum eða öllum málum. Hún kemur heldur ekki í stað þeirra úrræða sem þegar standa fólki til boða eftir að það hefur orðið fyrir afbroti eða öðrum skaða. Hún er viðbót, önnur leið sem getur staðið þeim til boða sem vilja og geta nýtt sér hana.

Kannski er einmitt þar stærsti lærdómurinn í Höggi. Réttlæti þarf ekki aðeins að snúast um það hvaða refsingu sá sem braut af sér fær. Það getur líka falist í því að spyrja hvers sá sem varð fyrir skaða þarfnast, hvernig sá sem olli honum getur axlað raunverulega ábyrgð og hvað þarf til að takast á við afleiðingarnar og finna leið áfram.

Það sem gerðist verður ekki tekið til baka. Sumt verður aldrei bætt. En það þýðir ekki að við getum ekki haft áhrif á það sem tekur við.

En hvað með Ísland?

Uppbyggileg réttvísi er ekki hugsuð sem staðgengill fyrir þau úrræði sem við höfum þegar byggt upp í samfélaginu. Hún er viðbót við þau. Við þurfum áfram rannsóknir mála, dómstóla, heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning og önnur úrræði fyrir fólk sem orðið hefur fyrir skaða. En þarf ein leið að útiloka aðra?

Þarfir fólks eftir alvarlegan atburð eru ólíkar. Sum vilja fyrst og fremst geta haldið áfram með líf sitt án frekari tengsla við þann sem olli skaðanum. Önnur sitja eftir með spurningar sem enginn nema sá sem olli skaðanum, getur svarað. Fyrir suma skiptir mestu máli að fá að segja frá því, með eigin orðum, hvaða áhrif atburðurinn hafði á líf þeirra. Enn aðrir vilja vita hvort sá sem olli skaðanum geri sér raunverulega grein fyrir afleiðingum gjörða sinna.

Við getum ekki ákveðið fyrir fólk hvað það þarf til að vinna úr afleiðingum þess sem gerðist. En það er á okkar ábyrgð sem samfélags að tryggja að fleiri leiðir standi því til boða. Á Íslandi hefur þegar verið unnið að því að byggja upp þekkingu og reynslu á sviði uppbyggilegrar réttvísi. Nú er tímabært að ræða af alvöru hvort hún eigi að verða raunverulegur og aðgengilegur valkostur fyrir þau sem vilja nýta sér hana.

Ekki í stað þess sem fyrir er heldur til viðbótar.

Högg segir sögu um skelfilegan atburð og afleiðingar hans. En hún segir líka sögu um það sem getur gerst þegar fólk fær tækifæri til að horfast í augu við skaðann, spyrja erfiðra spurninga og leita annarrar leiðar áfram.

Kannski er það einmitt það sem góð menning getur gert. Hún getur hreyft við okkur, ögrað hugmyndum okkar og fengið okkur til að spyrja hvort hlutirnir þurfi alltaf að vera eins og þeir hafa verið.

Og þegar ljósin kvikna aftur í salnum eftir leikverkið Högg væri vert að velta einu fyrir sér: Ef uppbyggileg réttvísi getur verið ein þeirra leiða sem hjálpa fólki að takast á við afleiðingar alvarlegs skaða og finna leið áfram, ættum við þá ekki að tryggja að sú leið standi líka til boða hér á Íslandi?

Höfundar starfa hjá Domus Mentis Geðheilsustöð. Þóra er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, Kristín er félagsráðgjafi og handleiðari. Báðar eru þær miðlarar Uppbyggilegrar réttvísi, með réttindi til að vinna að viðkvæmum og alvarlegum málum.




Skoðun

Sjá meira


×