Innlent

„Eigum ekki að bíða eftir al­var­legu at­viki“

Birgir Olgeirsson skrifar
Víðistaðaskóli í Hafnarfirði. Skólastjórar bæjarins óska eftir fjármagni til að takmarka aðgang að skólum og auka öryggi nemenda og starfsfólks.
Víðistaðaskóli í Hafnarfirði. Skólastjórar bæjarins óska eftir fjármagni til að takmarka aðgang að skólum og auka öryggi nemenda og starfsfólks.

Skólastjórar í Hafnarfirði vilja takmarka aðgang að skólum og fá fjármagn til öryggisúrbóta. Í Reykjavík hafa einstaklingar eða hópar farið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, eins og Vísir greindi frá í vikunni. Kolbrún Magnúsdóttir bæjarfulltrúi segir að ekki eigi að bíða eftir alvarlegu atviki áður en ráðist sé í nauðsynlegar úrbætur í Hafnarfirði.

Vísir fjallaði á miðvikudag um áhyggjur af öryggi nemenda og starfsfólks í skólum Reykjavíkur. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og kallaði eftir endurskoðun á því hvernig öryggi væri tryggt.

Hún sagðist hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum væri læst meðan kennsla færi fram. Skóla- og frístundaráð lýsti jafnframt áhyggjum af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki væru í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri.

Í Hafnarfirði hafa skólastjórar grunnskóla og tónlistarskóla einnig kallað eftir því að aðgangur að skólabyggingum verði takmarkaður. Í sameiginlegu bréfi þeirra til fræðsluráðs, dagsettu 30. september, kemur fram að öryggisúttekt hafi leitt í ljós úrbótaþörf á fjölmörgum sviðum.

Vilja læsa fleiri inngöngum og fjölga myndavélum

Eyþór Víðisson öryggisfræðingur vann úttektina. Hann heimsótti alla grunnskóla bæjarins og Tónlistarskólann og ræddi við skólastjórnendur og umsjónarmenn fasteigna.

Samkvæmt bréfinu vilja allir skólastjórnendur sem rætt var við takmarka aðgang að skólabyggingum meira en nú er, auka eftirlit, fjölga myndavélum og bæta merkingar.

Markmiðið sé að lágmarka óheimilan aðgang og fækka inngöngum sem eru ólæstar meðan kennsla stendur yfir. Meðal tillagnanna eru dyrasímar með myndavélum, auknar aðgangsstýringar og skýrara verklag um aðgang foreldra, gesta og þjónustuaðila.

Ráðstafanirnar þurfi jafnframt að taka mið af brunavörnum, rýmingu og aðgengi fatlaðs fólks. Í bréfinu eru engin tiltekin öryggisatvik nefnd sem kveikja að úttektinni.

Segja úrbætur háðar fjármagni

Skólastjórarnir óska eindregið eftir því að sérstakt og fullnægjandi fjármagn verði tryggt til framkvæmdanna. Þeir vilja tímasetta og fjármagnaða framkvæmdaáætlun þar sem úrbótum verði forgangsraðað eftir mikilvægi og aðstæðum í hverjum skóla.

„Án viðeigandi fjármögnunar verður ekki unnt að fylgja niðurstöðum úttektarinnar eftir með þeim hætti sem nauðsynlegt er,“ segir í bréfinu.

Fræðsluráð tók erindið fyrir 14. október og vísaði því til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027. Með þeirri afgreiðslu var ekki samþykkt fjárveiting til úrbótanna.

Fulltrúi grunnskólakennara tók undir erindið og lagði áherslu á að auka öryggistilfinningu nemenda og starfsfólks gagnvart utanaðkomandi áreiti.

Kallar eftir aðgerðum áður en eitthvað gerist

Kolbrún Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði, fjallaði um úttektina í skoðanagrein á Vísi í gær. Þar sagði hún bæjaryfirvöld þurfa að bregðast við þeim veikleikum sem hefðu verið greindir áður en þeir leiddu til alvarlegra atvika.

Hún kallaði eftir kostnaðarmati, forgangsröðun og skýrri ábyrgð á framkvæmd úrbóta. Áætlunin þyrfti að sýna hvaða verkefni yrðu unnin fyrst og hvenær hverjum verkþætti ætti að ljúka. Jafnframt þyrfti reglulega eftirfylgni til að tryggja að niðurstöður úttektarinnar skiluðu sér í auknu öryggi barna og starfsfólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×