Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar 17. október 2026 10:02 Mikið hefur verið skrifað og rætt um fæðuöryggi, skýrslur skrifaðar og ráðstefnur haldnar. Minna hefur farið fyrir heildstæðum áætlunum eða aðgerðum stjórnvalda sem raunverulega tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Þessi staða er umhugsunarverð, ekki síst vegna þess að almenn samstaða virðist vera á meðal þjóðarinnar og einnig á Alþingi um að fæðuöryggi sé mikilvægur hluti þjóðaröryggis og að þjóðaröryggi verði ekki tryggt án fæðuöryggis. Hér eru á ferð grundvallarhagsmunir þjóðar. Almannahagsmunir, en ekki sérhagsmunir. Á degi landbúnaðarins fyrir skemmstu, var málþing haldið í boði Bændasamtaka Íslands og Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, þar sem flutt voru mörg áhugaverð erindi. Eitt þeirra flutti Helgi Valberg Jensson, ritari Þjóðaröryggisráðs og var yfirskrift erindis hans „Landbúnaður og fæðuöryggi í þjóðaröryggi Íslands“. En sjöundi áhersluþáttur af tólf í þjóðaröryggisstefnu Íslands fjallar einmitt m.a. um vernd og órofa virkni mikilvægra innviða, styrkingu áfallaþols samfélagsins og því tengdu matvæla- og fæðuöryggi og samhæfðan viðbúnað. Ritari þjóðaröryggsráðs í sínu fróðlega fyrrnefnda erindi, teiknaði upp tvær sviðsmyndir í yfirferð sinni (A) Innflutningur matvæla hættir að berast til Íslands en eldsneyti, fóður, áburður og lyf og önnur aðföng berast áfram og (B) Allar aðfangaleiðir raskast: innflutt matvæli og aðföng til innlendrar framleiðslu hætta að berast. Því er skemmst frá að segja að sviðsmynd B er talin líklegri og er þess utan mun alvarlegri, sem segir okkur enn og aftur að öflug innlend matvælaframleiðsla er gríðarlega mikilvæg almannahagsmunum þjóðar. Ég mæli eindregið með áhorfi á erindin sem flutt voru og hvet sérstaklega atvinnuvegaráðherra Viðreisnar til að horfa á upptöku af fundinum, hafi hún ekki horft á í streymi. Ég vil benda henni sérstaklega á að fram kom að grunnurinn að fæðuöryggi væri öflug innlend matvælaframleiðsla, virkt stoðkerfi, nauðsynlegar birgðir og fjölbreyttar aðfangaleiðir. Enginn nefndi að lykillinn að fæðuöryggi væri aukinn innflutningur matvæla eða niðurfellingar tolla, enda ýtir slíkt alls ekki undir fæðuöryggi. Á erindi forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, var ekki annað að skilja en að hún ætli að standa með innlendri matvælaframleiðslu, landbúnaði og fæðuöryggi og þar með þjóðaröryggi, sem eru jákvæð skilaboð til landsmanna. Ég hef nú lagt fram á Alþingi, í þriðja sinn, tillögu til þingsályktunar um að fela atvinnuvegaráðherra að ráðast í þar tilgreindar aðgerðir, í samstarfi við hagaðila, sem allar miða að því að stuðla að fæðuöryggi og efla innlenda matvælaframleiðslu. Ein þessara aðgerða er að gera heildstæða landsáætlun með þátttöku hagaðila, þar sem útlistað verði hvernig fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt, við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma og lagt til að við gerð slíkrar áætlunar verði sérstaklega tekið mið af þjóðaröryggisstefnu Íslands og mati á mikilvægum innviðum. Ég fæ vonandi að kynna tillöguna áður en langt um líður. Með samstilltu átaki gerum við enn betur í að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar, það er of seint að hefjast handa þegar áfall hefur dunið yfir. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landbúnaður Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun