Handbolti

Níu mörk Jóhannesar ekki nóg

Sindri Sverrisson skrifar
Jóhannes Berg Andrason fór á kostum í Danmörku í dag.
Jóhannes Berg Andrason fór á kostum í Danmörku í dag. vísir/ívar

Jóhannes Berg Andrason var markahæsti maður vallarins í dag þegar Íslendingaliðið Holstebro mætti Nordsjælland á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Jóhannes skoraði níu mörk í leiknum og Benedikt Gunnar Óskarsson, sem kominn er af stað eftir að hann fékk golfkúlu í höfuðið í sumar, skoraði eitt mark.

Það dugði þó skammt því Nordsjælland fagnaði átta marka sigri, 36-28.

Holstebro, sem leikur undir stjórn Arnórs Atlasonar, er því áfram með sjö stig í 10. sæti en Nordsjælland er í 8. sæti með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×