Veður

Engar við­varanir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þótt úti sé blautt þarf enn að viðra hundana.
Þótt úti sé blautt þarf enn að viðra hundana. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem olli storminum í gær er nú fyrir norðan land og fjarlægist. Engar veðurviðvaranir eru í gildi en veðrið hefur leikið íbúa landsins grátt síðustu daga. 

Það verður suðvestanátt, tíu til átján metrar á sekúndu og skúrir í dag, en að mestu þurrt norðaustan- og austanlands. Það lægir smám saman, sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar síðdegis. Bætir í úrkomu, rigning eða skúrir í kvöld, þó síst á Norðausturlandi. Hiti fjögur til tíu stig. 

Sunnan átta til þrettán metrar á sekúndu austast á morgun, annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil, en skúrir eða slydduél við vesturströndina.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Sunnan 8-13 m/s austast, en annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil, en smáskúrir eða slydduél vestanlands. Hiti 2 til 9 stig, mildast við austurströndina.

Á miðvikudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Rigning eða snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi, smáél á Vestfjörðum en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn, en um eða undir frostmarki inn til landsins.

Á fimmtudag:

Breytileg átt og úrkomulítið, en dálítil væta sunnanlands. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Hægur vindur og bjart með köflum, en sums staðar smáél við ströndina. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):

Austlæg átt, stöku skúrir eða él og áfram svalt.

Á sunnudag:

Norðanátt og slydda eða rigning með köflum, en þurrt suðvestan- og vestanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×