Innlent

Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA

Jakob Bjarnar skrifar
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ætlar að opna fyrir niðurstöður úr PISA-prófi fryir þá grunnskóla og sveitarfélög sem eftir því leita.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ætlar að opna fyrir niðurstöður úr PISA-prófi fryir þá grunnskóla og sveitarfélög sem eftir því leita. Vísir/Anton Brink

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur tekið ákvörðun um að þau sveitarfélög og grunnskólar sem eftir því leita fái afhentar niðurstöður úr PISA 2025.

„Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD,“ segir í tilkynningu sem lesa má á stjórnarráðsvefnum.

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins gerði þetta málefni að umfjöllunarefni í „Störfum þingsins“ í síðustu viku en hann taldi ómetanlegar upplýsingar fara forgörðum vegna þeirrar leyndarhyggju sem ríkti um þessar niðurstöður.

Inga ætlar nú að opna dyrnar, að hluta í það minnsta.

„Með heildstæðri yfirsýn geta menntayfirvöld beint aðgerðum þar sem þörfin er mest og stuðlað að bættum námsárangri og framtíðartækifærum barna,“ segir meðal annars í áðurnefndri tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×