Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Kristján Már Unnarsson skrifar 19. október 2026 13:34 Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri stálbogabrú yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Vegagerðin Vegagerðin hefur ákveðið að hafna báðum tilboðunum sem bárust í lokaáfanga Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Í staðinn hefur verktökunum verið boðið að taka þátt í samkeppnisviðræðum með það að markmiði að ná niður kostnaði án þess að verklokum seinki.
Lokaáfangi þessarar miklu endurnýjunar Vestfjarðavegar, sem jafnan er kennd við Teigsskóg, felst í byggingu svipmikillar 210 metra langrar stálbogabrúar yfir Djúpafjörð sem og lagningu 4,6 kílómetra vegarkafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Aðeins tvö tilboð bárust í verkið, sem Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri sagði hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun. Lægra tilboðið var frá ÞG-verktökum upp á tæpa 3,9 milljarða króna. Það var um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á rúmlega 2,4 milljarða króna. Lægra boðið var þannig nærri 1,5 milljarði króna yfir áætluðum kostnaði. Hærra tilboðið barst frá Ístaki, upp á nærri sex milljarða króna. Það var 2,1 milljarði króna, eða 146 prósentum, yfir áætluðum verktakakostnaði. Brúin sýnd að vetrarlagi. Hún verður hluti Vestfjarðavegar.Vegagerðin „Báðum tilboðum hefur verið hafnað, en báðir bjóðendur hafa samþykkt að fara í samkeppnisviðræður við Vegagerðina sem fara af stað núna á næstu dögum,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar. -Hvenær vonast menn til að fá niðurstöðu? Er stefnt að óbreyttum verklokum eða gæti þeim seinkað? G. Pétur Matthíasson er forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.Vísir/Einar „Þetta tekur líklega einhverjar vikur og mér finnst ólíklegt að verklokum seinki,“ svarar G. Pétur en samkvæmt útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar eru verklok áætluð þann 1. október 2028, eftir tvö ár. -En verður opnað á breytta útfærslu mannvirkja eða miðað við þá hönnun sem boðin var út? „Það er of snemmt að svara þessum spurningum. Það verður rætt um hvað gæti betur farið,“ svarar upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Verkefnið var útskýrt í kvöldfréttum Sýnar fyrr á árinu:
Vegagerð Teigsskógur Samgöngumál Samgönguáætlun Reykhólahreppur Tengdar fréttir Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Lokaáfangi Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði. 29. september 2026 16:00 Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31 Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22 Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Sjá meira
Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Lokaáfangi Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í uppnámi eftir að tilboð reyndust himinhátt yfir áætluðum verktakakostnaði. Aðeins tvö tilboð bárust, það lægra frá ÞG-verktökum upp á liðlega 3.888 milljónir króna. Það er um sextíu prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem var upp á tæplega 2.432 milljónir króna. Lægra boðið er þannig nærri 1.457 milljónum króna yfir áætluðum kostnaði. 29. september 2026 16:00
Vegfarendur verða að þola Ódrjúgshálsinn enn lengur Opnun nýs Vestfjarðavegar um Gufudalssveit seinkar enn og tilkynnti Vegagerðin í dag að brýrnar yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, sem leysa eiga af Ódrjúgsháls, yrðu ekki tilbúnar fyrr en í árslok 2028. 12. maí 2026 20:31
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25. október 2023 22:22