Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2026 13:37 Kim Yo Jong, systir Kim Jong Uns, þegar hún hélt ræðu í Pyongyang árið 2022. AP/KCNA Kim Yo Jong, áhrifamikil systir norðurkóreska einræðisherrans Kim Jong Un, segir að landamæri ríkisins og Suður-Kóreu séu „mjög óstöðug“. Vegna þessa og annarra aðgerða „glæpamanna“ í Suður-Kóreu sé meðal annars verið að skoða að auka viðbúnað þar og setja aftur upp stóra hátalara við landamærin og básúna pólitísk skilaboð yfir þau.
Ráðamenn í Pyongyang hafa þvertekið fyrir að bera ábyrgð á jarðsprengju sem særði tvo hermenn Suður-Kóreu alvarlega. Rannsókn bendir til þess að jarðsprengjunum hafi vísvitandi verið komið fyrir sunnanmegin við hlutlausa svæðið svokallaða af hermönnum frá Norður-Kóreu. Í yfirlýsingu frá Kim sem vísað er í í fréttum KCNA, ríkisrekinnar fréttaveitu Norður-Kóreu, segir að staðan á landamærum ríkjanna sé mjög alvarleg, vegna hegðunar „glæpamannanna“ í Suður-Kóreu. Hún sakaði Suður-Kóreumenn um að ógna hermönnum Norður-Kóreu og auka spennu ríkjanna á milli. Með því að ljúga upp á Norður-Kóreu varðandi áðurnefndar landsprengjur hefðu ráðamenn í Suður-Kóreu farið yfir „rauðar línur“ Norður-Kóreu. Sjá einnig: Kim fjölgar herskipum sínum Þá hélt Kim því fram að frá 1. ágúst til 17. október hefðu Suður-Kóreumenn skotið 201 viðvörunarskoti sem ætlað var hermanni Norður-Kóreu og básúnað áróður yfir landamærin 2.870 sinnum, eins og fram kemur í frétt Yonhap. Þess vegna segir hún að verið sé að skoða að auka viðbúnað við landamærin og að hefja aftur útsendingu áróðurs frá Norður-Kóreu til suðurs. Kim sagði önnur viðbrögð til skoðunar en fór ekki nánar út í hvað hún átti þar við. Þá hótaði hún Suður-Kóreu öllu illu ef ráðamenn þar myndu ögra Norður-Kóreu. Kim Yo Jong hefur lengi þótt áhrifamikil í Norður-Kóreu en Kim Jong Un veitti henni árið 2020 frekari völd varðandi stjórn einræðisríkisins. Um tíma var talið að hún gæti orðið erfingi bróður síns. Þá hefur hún einnig tekið að sér að stýra samskiptum Norður-Kóreu við Suður-Kóreu. Við þau störf hefur hún ítrekað verið mjög harðorð í garð ráðamanna í Suður-Kóreu. Hún kallaði fyrrverandi forseta Suður-Kóreu til að mynda „einfaldan“ og sagði honum að halda kjafti. Seinna meir kallaði hún sama forseta fávita. Þessi samskipti hafa versnað til muna á undanförnum árum. Norður-Kóreumenn hafa komið fyrir fleiri jarðsprengjum, gaddavír og skriðdrekatálmum sín megin við landamærin að undanförnu en þeir hafa þá yfirlýstu stefnu að rjúfa alfarið tengslin við Suður-Kóreu.
Norður-Kórea Suður-Kórea Hernaður Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira