Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar 21. október 2026 08:16 Við lifum á tímum þar sem tækninni hleypir svo hratt fram að velta má fyrir sér hvort tækniþróunin sjálf sé orðin ógn við grunnstoðir hins mannlega samfélags, vöxt okkar og velferð. Á sama tíma og tæknin hefur leyst okkur af hólmi við hin ýmsu verkefni daglegs lífs þá er líðan fólks líklega ekki betri en áður og tilveran flóknari. Getur verið að tækniþróunin ýti undir það að sumt fólk verður ósýnilegt innan samfélagsins og tæknin ræni okkur ýmsum tækifærum sem skipta máli fyrir vöxt okkar og velferð? Dagar og vikur án samskipta og tengsla Í nútímasamfélagi getur fólk farið í gegnum heilu dagana og vikurnar án þess að eiga bein samskipti við nokkra manneskju. Áður fyrr var það þannig að fólk fór í bankann sinn og hitti starfsfólk sem það þekkti og spjallað var um daginn og veginn auk þess að sinna erindinu. Fólk fór einnig í búðina og átti samskipti við starfsfólkið sem afgreiddi á kassanum. Ungt fólk þurfti að hringja til að panta pizzu eða fara og banka upp á til að spyrja hvort vinir vildu leika. Í dag getur þetta allt átt sér stað án beinna tengsla við aðrar manneskjur. Fólk leitaði ráða vegna ýmiss konar vandamála og til að afla upplýsinga en í dag er gervigreindin orðin sú leið sem mörg okkar leita upplýsinga og ráða hjá. Samfélagsmiðlar geta mótað viðhorf okkar og reiknirit (algorhytmi) matar okkur á efni sem getur haft áhrif á hugsanir okkar, tilfinningar og hegðun. Slíkt getur ýtt undir ringulreið, sundrungu og skapað upplýsingaóreiðu eins og til dæmis er fjallað um í heimildamyndinni Social dilemma. Taugakerfi sem þróaðist við allt aðrar aðstæður Hvaða áhrif hafa þessar breytingar á þroska barna, unglinga, vöxt okkar og velferð? Ekki síst í ljósi þess að líkami okkar og taugakerfi þróuðust við allt aðrar aðstæður en við búum við í dag. Við erum í grunninn spendýr sem stýrumst af mjög öflugu og þróuðu taugakerfi sem hefur aðeins tvö megin markmið, að lifa af og fjölga tegundinni. Hvaða áhrif hefur það á taugakerfi okkar og heilsu þegar daglegt líf okkar er komið svo langt frá upprunanum og okkar frumgerð eins og raun ber vitni? Tengsl við annað fólk og það að tilheyra er okkur lífsnauðsynlegt og það er lífsógnandi fyrir okkur sem spendýr að vera ein á báti eða vera hafnað af hópnum út frá þróun okkar. Hvaða áhrif hefur það þegar við getum hæglega verið ein og ósýnileg og þurfum ekki að eiga nein tengsl til þess að lifa af dags daglega? Styrkur samfélags liggur í tengslunum okkar á milli, margbreytileikanum og öflugri samvinnu heildarinnar þar sem hver og ein manneskja er í tengslum, er séð, upplifir að vera elskuð, að tilheyra og að það sé staðið með hverju og einu okkar. Hvert stefnum við? Það er hollt að staldra við og hugleiða hvert við stefnum og hvert við viljum stefna. Hvernig getum við skapað aðstæður í samfélagi okkar sem nýta tækniþróun til góðs án þess að tapa þeim frumskilyrðum manneskjunnar sem eru grunnur þess að við þrífumst, vöxum og döfnum? Þessar aðstæður getum við hvert og eitt hjálpað til við að skapa. Við getum valið það á hverjum morgni að vera góðar manneskjur fyrir okkur og annað fólk, eins og séra Benedikt Sigurðsson prestur í Vídalínskirkju minnti unga fólkið í Garðabæ á í nýlegum pistli. Við getum valið það að byggja upp jákvæð tengsl við aðrar manneskjur, reynt að skilja hvert annað svo við upplifum að vera séð. Kannski erum við komin á þann stað í þróunarsögu okkar að við þurfum hreinlega að snúa tilbaka að einhverju leyti til þess veruleika og þeirra tengsla sem var okkur farsælli en á sama tíma geta höndlað og nýtt þá miklu og jákvæðu tækniþróun sem við eigum nú. Höfundur er sérfræðingur í klínískri sálfræði og starfar á Domus mentis geðheilsustöð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun