Arctic Therapeutics klárar 2,6 milljarða fjármögnun til frekari lyfjaþróunar
Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Arctic Therapeutics hefur lokið fjármögnun fyrir jafnvirði rúmlega 2,6 milljarða króna eftir að ákveðið var að stækka útboðið vegna umframeftirspurnar. Fjögur fjárfestingarfélög, þar á meðal Pekron og Kaldbakur, leiddu fjármögnunina sem verður einkum nýtt til að koma tveimur nýjum lyfjaþróunarverkefnum nær klínískum rannsóknum.