Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar 21. október 2026 13:00 Ég er kennari og hef kennt í grunnskólum og sérskólum bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Auk þess er ég sérfræðimenntaður í menntunarfræðum. Ég hef reynslu bæði af því að kenna öflugustu nemendum 10. bekkjar og slökustu nemendum 8. bekkjar. Ég hef einnig reynslu af kennslu einhverfra nemenda á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Munurinn á kennslu í grunnskóla og sérskóla er sá að í grunnskóla á kennarinn að fylgja aðalnámskrá grunnskóla og greinanámskrá viðkomandi námsgreinar. Í sérskóla útbýr kennarinn námskrá fyrir hvern nemanda sinn. Vetur einn eða tvo kenndi ég slökustu nemendum 8. bekkjar stærðfræði. Við höfðum getuskipt nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk. Í hverjum árgangi voru um það bil eitt hundrað nemendur. Við vorum fimm stærðfræðikennarar á unglingastigi og nemendum var skipt í fimm bekki í hverjum árgangi. Í áttunda bekk kenndi ég slakasta hópnum. Hverjum árgangi skiptum við á þann hátt að við höfðum sterkustu nemendurna í 30 nemenda hópi, hópur tvö var með 25 nemendur, hópur þrjú taldi 20 nemendur, hópur fjögur samanstóð af 15 nemendum og að lokum taldi hópur fimm, sá slakasti, 10 nemendur. Á þennan hátt vonuðumst við til að þjónusta alla nemendur sem best. Vissulega má deila um uppskiptingu nemenda eftir getustigi, en við stærðfræðikennararnir fengum stjórnendur skólans með okkur í lið við uppskiptinguna. Engar kvartanir bárust vegna skiptingarinnar frá forráðamönnum, þar sem flestir þeirra töldu að uppskiptingin þjónaði nemendum mun betur. Til þess að þjónusta hópinn minn í áttunda bekk sem best vaknaði sú spurning hvort ég ætti að fara eftir námskrám grunnskóla (aðalnámskrá og greinanámskrá fyrir stærðfræði) eða hvort ég ætti að hanna einstaklingsbundna námskrá fyrir hvern nemanda. Slökustu nemendur hópsins voru á því getustigi að þeir spegluðu tölustöfum og höfðu litla sem enga þekkingu á reikniaðgerðunum fjórum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu). Á sjö árum í grunnskóla höfðu nemendur ekki getað tileinkað sér undirstöðuaðferðir reikniaðgerðanna fjögurra og sumir þeirra spegluðu nokkra tölustafi. Ég, sem fagstjóri í stærðfræði, fór fram á það við skólastjórnendur að fá að gera einstaklingsbundna námskrá fyrir hvern nemanda minn, en svarið var þvert nei. Kenna skyldi eftir aðalnámskrá grunnskóla og greinanámskrá í stærðfræði. Sem fagstjóri bar ég ábyrgð á öllu stærðfræðinámi við skólann, en þurfti að fara eftir vilja yfirmanna minna. Nú voru góð ráð dýr. Hvernig gat ég þjónað skjólstæðingum mínum sem best og samtímis tekið mið af getustigi þeirra? Hvernig gat ég kennt áttundabekkingunum mínum námsefni áttunda bekkjar þegar þeir höfðu ekki getu til þess? Í stærðfræðináminu fyrir allan unglingahópinn höfðum við ákveðna vikuskammta sem allir áttu að skila. Ég tíndi út léttustu dæmin úr námsefninu og bjó til vikuskammt fyrir nemendur. Ég reiknaði öll vikudæmin fyrir þau á töflunni og lét þau skrifa niður útreikningana mína. Á föstudögum fór ég síðan yfir hvort nemendur hefðu skrifað niður öll dæmin eftir mér. Þar á eftir gaf ég þeim stimpilstjörnu í reikningsbækurnar þeirra. Nemendur fóru heim með stjörnumerktan vikuskammtinn, ánægðir með að hafa lokið því sem kennarinn hafði sett þeim fyrir. Eftir stóð kennarinn með skítabragð í munninum. Margoft óskaði ég þess að ef ég hefði aðeins fengið að gera einstaklingsbundna námskrá fyrir nemendur mína, þá hefði ég getað þjónað þeim af meiri virðingu. Vissulega gera sérkennarar skólans einstaklingsnámskrá fyrir nemendur sína, en aðeins þá nemendur sem eru í sérdeild. Þá eru kennarar skyldugir til að stjörnumerkja einkunnina. Það þýðir að einkunnin er ekki sambærileg við stærðfræðieinkunnir annarra nemenda. Að ofansögðu má segja að mörg agavandamál í grunnskólum megi leysa með því að gefa nemendum námsefni við hæfi. Bekkjarkennarar í yngri bekkjum grunnskólans þurfa að huga betur að námi nemenda sinna. Enginn nemandi í áttunda bekk ætti að vera á því þroskastigi að spegla tölustafi, hvað þá að hafa litla sem enga grunnþekkingu á reikniaðgerðunum fjórum. Lausna má leita í fyrsta lagi í kennaranáminu, sem þyrfti að breytast. Lokaár kennaranámsins ætti að vera kandídatsár, eins og hjá læknum, undir ábyrgð þess skóla sem tæki að sér kennaranemann. Kandídatsárið þyrfti að vera launað og kandídatinn hefði stöðu aðstoðarkennara. Einnig þyrfti viðkomandi skóli síðan að tryggja nýútskrifuðum kennara starfi að minnsta kosti fyrsta starfsárið. Í öðru lagi þarf að bæta námsgögn. Hægt er að þýða námsgögn frá hinum Norðurlandaþjóðunum og aðlaga þau íslenskum aðstæðum eða búa til alíslenskt námsefni. Í þriðja lagi þarf að breyta og einfalda aðalnámskrá grunnskóla og greinaskrár. Stytta þarf námskrárnar og gera þær hnitmiðaðri þannig að markmið og aðferðir til að ná þeim komi skýrar fram. Aðalnámskrá grunnskóla minnir á útópíu framtíðarskálds sem hefur fengið frjálsar hendur til að grípa niður hugarsýnir sínar eftir neyslu umferðareyjasveppa. Byggjum upp menntun barnanna okkar sem hagnýta menntun, sem hægt er að meta út frá fyrirframgefnum viðmiðum og með skýrum aðferðum til að ná því markmiði sem til er ætlast. Höfundur er kennari á eftirlaunum og sérfræðingur í menntun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun