Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 21. október 2026 16:02 Annie Mist Þórsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar sigrað Crossfit-leikana og bjóða nú upp á æfingar og fræðslu fyrir mismunandi æviskeið kvenna. Þóra Ólafs Crossfit-stórstjörnurnar Annie Mist Þórsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa útbúið æfingakerfi sem er sérstaklega hannað fyrir konur yfir fertugt og tekur það meðal annars fyrir þær áskoranir sem geta fylgt breytingaskeiðinu.
Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æfa í mismunandi líkamlegum aðstæðum. World Class og Empower by Dóttir, fyrirtæki Anniear og Katrínar, stóðu fyrir fræðandi konukvöldi í Laugum þar sem áhersla var lögð á heilsu kvenna, breytingaskeiðið og mikilvægi styrktarþjálfunar. Annie Mist og Katrín Tanja leiddu kvöldið og fræddu gesti um þær breytingar sem verða á líkama kvenna með aldrinum, áhrif hormónabreytinga og hvernig markviss hreyfing og næring geta stutt við heilsu og vellíðan. Í fréttatilkynningu segir: „Á kvöldinu kynntu þær æfingakerfi sem er sérstaklega hannað fyrir konur 40 ára og eldri. Æfingakerfið leggur áherslu á styrktarþjálfun sem hjálpar konum að byggja upp og viðhalda vöðvamassa, styrkja beinin og auka orku og vellíðan. Markmiðið er að hvetja konur til að æfa með líkamanum, ekki gegn honum, og mæta breyttum þörfum hans á mismunandi æviskeiðum. Gestir fengu einnig tækifæri til að spyrja spurninga og ræða við Annie Mist og Katrínu Tönju um þjálfun, næringu og þær áskoranir sem geta fylgt breytingaskeiðinu. Stefnt er að því að halda reglulega viðburði á vegum World Class og Empower by Dóttir. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem konur geta sótt sér fræðslu, innblástur og hvatningu til að efla eigin heilsu og vellíðan.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu: Annie Mist og Katrín Tanja voru ánægðar með vel heppnað kvöld.Þóra Ólafs Annie Mist, Katrín Tanja, Birgitta Líf og Anna Bergmann.Þóra Ólafs Katrín Tanja vann heimsleikana í Crossfit árin 2015 og 2016.Þóra Ólafs Annie Mist vann heimsleikana í Crossfit árin 2011 og 2012.Þóra Ólafs Tvíeykið stendur fyrir æfingakerfinu Empower by Dóttir.Þóra Ólafs Konur fengu tækifæri til að spyrja stelpurnar ýmissa spurninga.Þóra Ólafs Katrín Tanja og Annie Mist fræddu gesti um þær breytingar sem verða á líkama kvenna með aldrinum.Þóra Ólafs Annie Mist, Odda Helgadóttir móðir Katrínar Tönju og Katrín Tanja.Þóra Ólafs Gleðin var í loftinu.Þóra Ólafs World Class og Empower by Dóttir stefna á að halda fleiri fræðslukvöld.Þóra Ólafs Gestir fylgdust einbeittir með.Þóra Ólafs Nóg af veitingum.Þóra Ólafs Katrín Tanja brosti breitt.Þóra Ólafs Dóttir-skvísurnar í stuði.Þóra Ólafs
Heilsa Líkamsræktarstöðvar CrossFit Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira