„Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2026 21:47 Declan Rice sést hér með Harry Kane í leikslok en liðin sættust á jafntefli eftir hörku leik. AP/Martin Meissner Declan Rice skoraði jöfnunarmark Arsenal í 2-2 jafnteflinu við Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld en eftir leik hrósaði hann kollega sínum í enska landsliðinu.
Harry Kane skoraði bæði mark og gaf stoðsendingu í leiknum en Rice sá til þess að Englandsmeistarar Arsenal færu í burtu með stig. Harry Kane kláraði viðtalið sitt rétt á undan Rice og miðjumaður Arsenal byrjaði sitt viðtal á því að lofa Kane. „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or. Tölfræðin talar sínu máli og árið sem hann hefur átt hefur verið stórkostlegt. Þegar maður spilar með honum áttar maður sig á því hversu góður hann er og þegar maður spilar á móti honum sér maður hversu erfiður hann er viðureignar,“ sagði Declan Rice. „Hann er ótrúlegur, svo góður leikmaður, og ég er heppinn að fá að spila með honum en ekki jafnheppinn að þurfa að spila á móti honum,“ sagði Rice. Rice stal samt fyrirsögnunum með mikilvægu marki undir lokin. „Þegar maður spilar gegn liðum sem dekka mann á mann um allan völl þarf maður að fylgja ákveðnum grundvallarreglum. Þeir elta mann um allan völl en ég losnaði við manninn minn, hélt bara áfram að hlaupa, losnaði við þann sem elti mig og þá var ég kominn í færi. Ég er svo ánægður. Gyökeres hefur haft svo góð áhrif þegar hann kemur inn af bekknum. Hann tók frábær hlaup í kvöld og lagði upp markið fyrir mig,“ sagði Rice en Svíinn lagði upp markið. Leikurinn var bráðfjörugur og bæði lið óhrædd við að sækja. „Þetta er það sem stjórinn hefur innprentað í okkur. Við ætluðum ekki bara að koma hingað og liggja til baka. Á heimavelli eru þeir sennilega eitt besta lið Evrópu, svo það var virkilega gott að koma hingað í kvöld og standa okkur svona vel. Við verðum að halda áfram,“ sagði Rice.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira