Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Andri Broddason skrifar 22. október 2026 11:32 Albert Brynjar Ingason vill fá annan harðan þjálfara eins og Ruben Amorim til þess að hreinsa til hjá Manchester United. Samsett/Getty/Vísir Mikið fjaðrafok hefur verið hjá Manchester United eftir slæmt gengi félagsins og mikla gagnrýni leikmanna á stjórn félagsins. Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, og Michael Carrick, stjóri Manchester United, skutu föstum skotum hvor á annan eftir stórtap gegn Como í gær.
Sérfræðingar Sýnar Sport ræddu viðtölin og stöðu Manchester United eftir leikinn og fannst þeim óvenjulegt að fyrirliði og þjálfari rífist í fjölmiðlum. Klippa: Allt í skrúfunni hjá Manchester United „Þótt þetta sé ekki bein árás á Carrick frá Bruno [Fernandes] þá eiginlega er þetta samt árás. Að svona mikilvægur leikmaður sé að tala um taktíkina eins og hún hafi verið röng. Það er skot á þjálfarateymið,“ sagði Sigurvin Ólafsson og segir orkuna inni í búningsklefanum vera orðna slæma. Albert Brynjar Ingason hefur ekki verið bjartsýnn á framtíð Michael Carrick sem stjóra Manchester United og hefur afstaða hans ekkert breyst eftir leik gærkvöldsins. Hann líkir stöðu liðsins við þegar Ole Gunnar Solskjaer var látinn fara nema nú er staðan verri. „Það eru mjög vondar frammistöður sem United er búið að eiga á þessu tímabili, með sjö stig eftir sjö umferðir í ensku úrvalsdeildinni og hefur liðið ekki unnið í sjö leikjum í röð í öllum keppnum,“ sagði Albert Brynjar og þuldi upp slæma frammistöðu hjá Manchester United í síðustu leikjum. „Ef maður horfir á Carrick, ef maður á að vera góður við hann einhvers ,staðar hvar getur maður verið það? Uppleggið er ekki gott hjá liðinu, mér finnst hann alltof linur í viðtölum, liðið virkar fyrir að vera ekki í standi og leikstjórnunin hans virðist vera ekki nein.“ Eitt af því helsta sem Bruno gagnrýndi í sínu viðtali var þjálfarateymið og benti Albert Ingi á að teymið væri líklegast ekki nógu gott til að starfa hjá félaginu. „Þessir menn í kringum hann [Jhonny] Evans, [Jonathan] Woodgate sem var rekinn með [Carrick] frá Middlesborough og Steve Holland. Er þetta fjögurra manna teymi sem á að vera með United?“ Sama hringrás aftur og aftur Bæði Albert Brynjar og Sigurvin tóku eftir því að það hljómaði eins og Fernandes vildi spila líkt og Como gerði. Það væri best fyrir Manchester United að stela Cesc Fabregas og fá hann til að þjálfa liðið. Stuðningsmenn Manchester United virðast vera orðnir langþreyttir á því að fyrrum leikmenn taki við sem stjórar félagsins. Það sé markmið að fá gömlu góðu dagana undir stjórn Sir Alex Ferguson til baka en sá tími er liðinn. Liðið þarf að finna aðra leið til þess að ná árangri frekar en að horfa endalaust til baka. Lausn Alberts Brynjars á vanda Manchester United er að fá annan stjóra líkt og Ruben Amorim sem getur hreinsað vel til hjá félaginu. Það gekk því miður ekki hjá Amorim en lausn félagsins er í þá áttina. Viðtölin og umræðan um þau má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Fótbolti Manchester United Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira