Innlent

Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, segir að upplýsingar um galla í algengu tölvukerfi hafi lekið út áður en öryggisuppfærslur urðu aðgengilegar.
Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, segir að upplýsingar um galla í algengu tölvukerfi hafi lekið út áður en öryggisuppfærslur urðu aðgengilegar. Vísir

Hundruð íslenskra vefsíðna voru berskjaldaðar vegna alvarlegra öryggisgalla sem urðu til þess að fjölda vefsíðna var lokað tímabundið víða um heim í gær. Meðal þeirra voru vefir Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og Strætó. Nú hefur komið í ljós að tölvuþrjótar reyndu að nýta gallana nokkrum dögum áður en öryggisuppfærslur voru gefnar út. Forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS varar við því að óuppfærð tölvukerfi geti verið í hættu. 

Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lokað tímabundið í gær, meðal annars í Hollandi, Finnlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu.

Hundruð íslenskra vefsíðna voru útsett fyrir gallanum en ekki þurfti að loka þeim öllum. Meða vefja sem lágu tímabundið niðri í gær voru vefir Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og Strætó.

Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, segir að upplýsingar um gallana hafi lekið út áður en öryggisuppfærslur urðu aðgengilegar. Rekstraraðilar vefsíðna hafi því þurft að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar kæmust inn í kerfin.

„Úti í heimi þá eru komin einhver dæmi fram þar sem að aðilar hafa verið að misnota þennan veikleika. Við höfum ekki fengið neinar tilkynningar til okkar að það hafi gerst hér á landi,“ segir Magni.

Amazon greindi tilraunir fjórum dögum áður

Amazon greindi frá því í dag að öryggisteymi fyrirtækisins hefði orðið vart við tilraun til að misnota veikleikann strax 17. október, fjórum dögum áður en gallinn var opinberaður og öryggisuppfærslur gefnar út. Tilraunin greindist í svonefndri öryggisgildru Amazon sem er kerfi ætlað að laða að og greina netárásir. Fyrirtækið segir að gallarnir séu nú misnotaðir í árásum víða um heim, þótt ekki hafi verið staðfest hvort fyrstu tilraunirnar hefðu tekist gegn raunverulegum kerfum.

Magni segir að vísbendingar hafi einnig komið fram hjá erlendum öryggisteymum um tilraunir til að misnota gallann áður en uppfærslurnar komu út. 

„Ekki er þó ljóst hvort allar þessar tilraunir hafi verið gerðar af árásaraðilum eða öryggissérfræðingum sem voru að prófa veikleikann,“ segir hann.

Opinberar vefsíður einnig berskjaldaðar

Samkvæmt kortlagningu CERT-IS voru hundruð íslenskra vefja útsett fyrir öryggisgöllunum. Það þýðir þó ekki að allir þessir vefir hafi verið teknir úr sambandi. Magni segir að stórir hýsingaraðilar hafi brugðist hratt við og annaðhvort lokað tímabundið fyrir aðgang að þjónustum sínum eða uppfært kerfin um leið og lagfæringar urðu aðgengilegar.

Spurður hvort vefsíður fjármálastofnana og opinberra aðila hafi einnig verið útsettar segir hann að svo hafi verið að einhverju leyti:

„Já að einhverjum hluta til en það var strax gripið til aðgerða.“ 

Geta stolið upplýsingum og náð stjórn á vefþjónum

Afleiðingar öryggisgallanna geta verið alvarlegar. Takist árásaraðilum að nýta þá geta þeir keyrt skaðlegan kóða á vefþjónum og mögulega náð yfirráðum yfir þeim. Magni segir að netglæpamenn geti þannig komist yfir viðkvæmar upplýsingar, þar á meðal notendaupplýsingar, og jafnvel nýtt aðganginn til að komast lengra inn í tölvukerfi fyrirtækja og stofnana.

„Þeir geta náð í rauninni bara fullri stjórn á vefþjóninum sem að keyrir vefsíðuna,“ segir Magni.

Árásaraðilar séu oftast á höttunum eftir fjárhagslegum ávinningi. 

„Sumir vilja þó fyrst og fremst valda usla, skemma vefsíður eða koma þar fyrir óæskilegu efni. Aðrir reyna að stela upplýsingum sem hægt sé að nýta til frekari árása eða fjárkúgunar,“ segir hann.

Gervigreind styttir viðbragðstímann 

Magni telur að búast megi við fleiri árásum af þessu tagi á næstu árum. Þróun gervigreindar hafi þegar breytt því hversu hratt hægt sé að finna öryggisgalla og nýta þá til innbrota.

„Árásaraðilarnir eru mun fljótari að nýta sér upplýsingar um veikleika til innbrota heldur en áður. Þannig að tíminn til að lagfæra hefur styst gríðarlega síðustu mánuði og ár út frá áhrifum gervigreindar,  segir hann.“

Getur tekið vikur að komast að tjóni

Enn hafa engar tilkynningar borist CERT-IS um að öryggisgallarnir hafi verið misnotaðir hér á landi. Það útilokar þó ekki að árásartilraunir hafi átt sér stað. Magni segir að nú taki við vinna við að skoða gögn á vefþjónum og kanna hvort óeðlileg umferð eða tilraunir til innbrota hafi átt sér stað undanfarna daga.

„Þetta getur alveg tekið þó nokkra daga ef ekki vikur að koma í ljós,“ segir hann.

Hann leggur ríka áherslu á að allir sem reka vefsíður kanni hvort kerfi þeirra séu útsett fyrir veikleikunum og uppfæri þau tafarlaust. Þá sé mikilvægt að hafa samband við rekstraraðila vefja og fara yfir gögn sem gætu sýnt vísbendingar um tilraunir til innbrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×