Lífið

Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Brady og Swanepoel er nýtt par ef marka má erlenda dægurmálamiðla.
Brady og Swanepoel er nýtt par ef marka má erlenda dægurmálamiðla. Getty/EPA

Bandaríska NFL-goðsögnin Tom Brady og suður-afríska ofurfyrirsætan Candice Swanepoel hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði. Brady skildi við brasilísku ofurfyrirsætuna Gisele Bündchen árið 2022 eftir þrettán ára hjónaband og hefur síðan þá verið orðaður við ýmsar konur.

Dægurmálamiðillinn US Weekly greindi fyrst frá sambandi Brady og Swanepoel og hafa fleiri fjölmiðlar síðan fjallað um málið.

„Þau hafa verið að slá sér upp í smá stund,“ sagði heimildarmaður People um parið og bætti við að þau hefðu verið að hittast í nokkra mánuði. Ellefu ár skilja þau að, Brady er 49 ára og Swanepoel er 38 ára.

„Þau búa bæði í Miami svo það er mjög heppilegt. Þau hafa varið miklum tíma saman,“ sagði heimildarmaður People. Þá greindi fjölmiðillinn frá því að parið hefði lagt mikið á sig til að halda sambandinu leyndu. Hvorki Brady né Swanepoel hafa tjáð sig um fregnirnar.

Sjá einnig: Brady og Shayk rugla saman reitum

Brady var giftur Gisele Bündchen frá 2009 til 2022 og eiga þau tvö börn á táningsaldri saman, soninn Benjamin og dótturina Vivian. Þar að auki á Brady nítján ára son með fyrrverandi kærustu sinni, Bridget Moynahan. Hann hefur verið orðaður við Irinu Shayk, Kim Kardashian og Alix Earle eftir skilnaðinn við Bündchen.

Swanepoel var í þrettán ár með brasilísku fyrirsætunni Hermann Nicoli frá 2005 til 2018 og eiga þau tvo syni saman.


Tengdar fréttir

Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney

Hollywood-stjarnan Sydney Sweeney virðist hafa verið vinsælasta stelpan á ballinu eftir brúðkaup milljarðamæringsins Jeffs Bezos og fjölmiðlakonunnar Laurenar Sánchez í Feneyjum því bæði leikarinn Orlando Bloom og Tom Brady, fyrrverandi NFL-kappi, gerðu hosur sínar grænar fyrir leikkonunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.