Gullboltinn afhentur í kvöld Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 15:17 Ronaldinho, sem hlaut Gullboltann árið 2005, afhenti Ousmane Dembélé verðlaunin í fyrra. EPA/Mohammed Badra Gullboltinn, Ballon d‘Or, verður afhentur við hátíðlega athöfn í Lundúnum í kvöld. Harry Kane er talinn líklegastur í karlaflokki til að fá verðlaunin en Alexia Putellas kvennamegin.
Harry Kane gæti hlotið verðlaunin í fyrsta sinn en samkvæmt veðbönkum er hann talinn líklegastur til að hljóta nafnbótina, og það í höfuðborg heimalandsins. Hátíðin er haldin í sjötugasta sinn í kvöld og fer fram í Lundúnum til að heiðra Sir Stanley Matthews sem hlaut verðlaunin fyrstu allra fyrir sléttum 70 árum. Franska stjarnan Kylian Mbappé er stutt á eftir Kane á líkindalistanum og þriðji er Spánverjinn Lamine Yamal, leikmaður Barcelona. Þeir eiga, líkt og Kane, eftir að vinna Gullbolta á sínum ferli. Yamal var annar í valinu á síðasta ári þegar Ousmane Dembélé hlaut þau í fyrsta sinn og Mbappé varð þriðji árið 2023. Kane hefur aldrei verið á meðal þriggja efstu. Aitana Bonmatí hefur hlotið Gullboltann síðustu þrjú ár í röð. Árin tvö á undan því fékk Alexia Putellas verðlaunin og allt bendir til að Putellas fái þau aftur í ár.Angel Martinez/Getty Images Í kvennaflokki er Alexia Putellas talin langlíkegust af veðbönkum, þar sem 94 prósent líkur eru sagðar á því að hún verði valin. 4 prósent líkur eru að pólski markahrókurinn Ewa Pajor verði valin og 1 prósent að Aitana Bonmati hljóti þau. Líkur annarra eru lægri. Putellas hlaut Gullboltann árin 2021 og 2022 og varð þá fyrsta konan til að hljóta verðlaunin tvö ár í röð. Hún skoraði 22 mörk í 45 leikjum á síðustu leiktíð með Barcelona þar sem liðið varð fjórfaldur meistari. Hún sjokkeraði þá fótboltaheiminn er hún skipti frá Barcelona til að semja við London City Lionesses í sumar. Fyrrverandi liðsfélagi Putellas, Aitana Bonmatí, hefur unnið Gullboltann í kvennaflokki síðustu þrjú ár í röð.
Fótbolti Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira