Skoðun

Hugsjónasvelta Reykja­vík

Líf Magneudóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifa

Í borgarstjórn eru teknir til starfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem enginn virðist vita hvað vakir fyrir og varla þeir sjálfir. Helstu tillögur þeirra snúa að uppsögnum og niðurskurði og umleitunum á því hvort einkafyrirtæki geti sinnt verkefnum borgarinnar eða jafnvel eignast þau. Þráspurðir um fyrirætlanir sínar, aðgerðir og markmið, geta þeir engu svarað nema að þörf sé á niðurskurði því reksturinn sé í rúst. Um það hafa þessir flokkar reynt að telja borgarbúum trú um lengi en þegar nánar er að gáð, stenst sú fullyrðing enga skoðun.

Í fjölmiðlum hafa þessir sömu fulltrúar með ummælum sínum litað líf starfsfólks og borgarbúa óvissu og óöryggi og sýnt störfum fólks í opinberri þjónustu skeytingarleysi. Í tillögum þeirra birtist óbærilegt þekkingarleysi á vinnunni sem það innir af hendi og hver afleidd áhrif verkefnanna sem það sinnir hafa. Þessi vanþekking leiðir af sér óvönduð vinnubrögð sem valda beinum skaða. Sem dæmi hafa þeir sagt upp starfsfólki en áttað sig á því að það þarf að ráða það aftur vegna þess að það er ómissandi. Yfirsjón og mistök af þessu tagi segir okkur að þessi stjórnarmeirihluti vandar ekki til verka og að verkstjórnin skortir alla pólitíska forystu.

Í dag urðum við aftur vitni að þessum óvönduðu vinnubrögðum þegar forsvarsfólk Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar reiddi á ný til höggs en í þetta sinn á leynifundi, lokuðum fundi borgarstjórnar, með fordæmalausu fundarboði. Almennt eru borgarstjórnarfundir opnir almenningi og þarf að rökstyðja það sérstaklega eigi fundurinn að vera lokaður. Slíkt var ekki gert fyrir fund. Á fundinum var lögð fram tillaga borgarstjóra um að ráðast í flatan niðurskurð og fela sviðstjórum að útfæra hann með uppsögnum starfsfólks. Það fær mann til að halda að skræfilshátturinn sé alger og að borgarfulltrúar þessara flokka hræðist borgarbúa enda kannski með réttu, því ekki hafa þeir getað sýnt fram á að allur þessi niðurskurður þjóni einhverjum tilgangi eða sé til þess að auka þá samfélagslegu þjónustu sem borgin veitir.

Í Reykjavík er nú skorið niður til þess eins að skera niður og haka við eitthvert markmið á verkefnalista. Með þessu er verið að setja á svið leikrit og blekkja borgarbúa. Borgarbúum er talið að hér séu komnir flokkar sem ætla heldur betur að taka til í rekstrinum og auka þjónustu við þá en í sömu andrá munda þeir niðurskurðarhnífinn. Og þetta er ekki búið enn. Þrátt fyrir fyrirheit um að þetta sé síðasta niðurskurðarhrinan þá hafa þessir flokkar sammælst um að fara í skipulagsbreytingar og rýna aðra þætti í starfsemi Reykjavíkur. Það mun líklega hafa í för með sér frekari niðurskurð með tilheyrandi uppsögnum.

Það sem eftir stendur er að öllum verkefnum fylgir ábyrgð. Að hlúa að og vera í forsvari fyrir samfélag krefst auðmýktar og skilnings og það þarf að afla sér þekkingar á því, þar sem hana brestur. Við kjósum okkur forystufólk í Reykjavík til þess að bera þessa pólitísku ábyrgð. Það er hins vegar orðið ljóst að nú hafa flokkar komist til valda sem nenna því ekki. Þeir hafa snúið öllu á hvolf í umræðunni og þykjast boða stórsókn í hinum ýmsu málum á meðan þeir skera niður að illa athuguðu máli í gangverki borgarinnar.

Niðurskurður er ekki náttúrulögmál. Hann er pólitískt val, byggt á ákveðinni hugmynd um hlutverk borgarinnar. Reykjavík er samfélag. Meirihlutaflokkarnir líta hins vegar á hana sem rekstrareiningu og hagfræðilegt viðfangsefni og opinber þjónusta og samfélagsleg ábyrgð eru látin víkja. Þegar niðurskurður er sífellt kynntur sem óhjákvæmileg nauðsyn er hætt við að sú hugmyndafræði sem liggur að baki honum verði ósýnileg. Þá er ekki lengur rætt um hvaða borg við viljum byggja, heldur aðeins hvað eigi að skera niður. Það er grundvallarmunur á því að glíma við fjárhagslegan vanda og að gera niðurskurð að sjálfstæðu pólitísku markmiði. Borgin verður ekki aðeins metin í krónum og aurum, heldur líka í þeirri þjónustu sem hún veitir, þeim störfum sem þar eru unnin og þeim lífsgæðum sem hún skapar.

Og um þetta stendur Vinstrið vörð, gegn hugmyndafræði hægrisins – hér eftir sem hingað til og því greiddum við atkvæði gegn tillögu borgarstjóra í dag.

Höfundar eru borgarfulltrúar Vinstrisins. 




Skoðun

Sjá meira


×