Skoðun

Við­reisn – góð stefna dugar ekki ein og sér

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar

Viðreisn var stofnuð á grunni frjálslyndra hugsjóna. Lýðræði, mannréttindi, frelsi einstaklingsins, jafnrétti og ábyrgð eru þar í öndvegi. Við viljum opið samfélag þar sem fólk fær að njóta hæfileika sinna, óháð aldri, uppruna eða efnahag, og við berum virðingu fyrir ólíkum skoðunum.

Viðreisn vill einnig öflugt atvinnulíf, heilbrigða samkeppni, nýsköpun og efnahagslegan stöðugleika. Við viljum að Ísland taki virkan þátt í Evrópusamstarfi og að þjóðin fái tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Við viljum skilvirka stjórnsýslu, ábyrga nýtingu skattfjár og öfluga velferðarþjónustu.

Þessi stefna er ástæða þess að ég gekk til liðs við Viðreisn. Ég tel að hún geti skilað íslensku samfélagi miklum ávinningi. En þá verðum við líka að spyrja okkur hvort við séum að ná þeim árangri sem stefnan á að skila.

Það er nefnilega ekki nóg að hafa góða stefnu. Við þurfum fólk sem getur hrint henni í framkvæmd.

Forystan verður að geta fylgt stefnunni eftir

Ég hef starfað við stjórnun og stefnumótun um áratugaskeið og lært að jafnvel besta stefna er lítils virði ef þeir sem bera ábyrgð á framkvæmd hennar hafa ekki sameiginlega sýn á hvert á að stefna. Þetta á jafnt við um stjórnmálaflokka og opinberar stofnanir.

Þegar við veljum fólk til forystu í Viðreisn þurfum við að gera ríkar kröfur. Það þarf að hafa sannfæringu fyrir grundvallargildum flokksins, geta talað fyrir stefnunni og ekki síður haft hæfni og kjark til að fylgja henni eftir.

Forystufólk þarf að geta unnið saman, hlustað á ólík sjónarmið og sameinað krafta fólks um þau verkefni sem skipta mestu máli. Það þarf líka að geta tekið erfiðar ákvarðanir og staðið með þeim.

Við eigum að geta séð í verkum forystunnar að samfélagið sé að þróast í þá átt sem við höfum sett okkur að markmiði. Ef við tölum fyrir frelsi, jafnrétti og lýðræði þurfa þau gildi að birtast bæði í vinnubrögðum okkar og þeim ákvörðunum sem við tökum.

Annars verður stefnan lítið annað en falleg orð.

Traust er forsenda árangurs

Undanfarið hefur umræða um Viðreisn að verulegu leyti snúist um persónuleg málefni og erfiðleika einstaklinga. Sum þessara mála kalla á skýr svör og ábyrgð. Önnur varða veikindi og persónuleg áföll sem mér finnst að við eigum að sýna meiri manngæsku.

Viðreisn, eins og aðrir flokkar, verður að gera kröfur um heilindi og ábyrgð þeirra sem gegna trúnaðarstörfum. Það er ekki hægt að byggja upp traust með því að líta fram hjá vandamálunum.

En við megum heldur ekki láta persónuleg mál einstaklinga skyggja á það sem flokkurinn stendur fyrir og vill áorka.

Traust almennings vinnst ekki með yfirlýsingum einum saman. Það byggist á því að fólk viti fyrir hvað flokkurinn stendur, sjái að forystan fylgi þeirri stefnu og finni að starfið skili árangri. Viðreisn verður að taka sínu mikilvæga hlutverki mjög alvarlega.

Frá stefnuyfirlýsingum til raunverulegs árangurs

Ég tel að Viðreisn eigi að leggja enn meiri áherslu á raunhæfa stefnumótun með skýrum árangursmarkmiðum. Það er auðvelt að samþykkja metnaðarfull markmið á flokksþingum. Erfiðara er að ákveða hvernig þeim verður náð, hvað það kostar, hver ber ábyrgð og hvenær og hvernig við ætlum að mæla árangurinn.

Við skulum taka nokkur dæmi.

Við viljum efnahagslegan stöðugleika og lægri vexti. Þá þurfum við að útskýra hvaða breytingar við teljum nauðsynlegar til að ná þeim markmiðum og hvernig við ætlum að meta árangurinn.

Við viljum efla atvinnulífið og nýsköpun. Þá þurfum við að greina hvaða hindranir standa í vegi fyrir frumkvöðlum og fyrirtækjum og setja okkur markmið um að ryðja þeim úr vegi.

Við viljum bæta opinbera þjónustu. Þá eigum við að geta sagt hversu mikið við ætlum að stytta afgreiðslutíma, einfalda reglur og bæta aðgengi fólks að upplýsingum og þjónustu.

Sama hugsun á að gilda um menntun, heilbrigðisþjónustu og velferð. Við þurfum að vita hvaða breytingum við viljum ná fram og hvort þær bæti raunverulega líf fólks.

Árangur verður ekki aðeins mældur í því hversu mörgum verkefnum er lokið eða hversu miklum fjármunum er varið. Við þurfum að meta hvort aðgerðirnar hafi skilað þeim samfélagslegu breytingum sem að var stefnt.

Það er í mínum huga kjarni árangursríkrar stjórnsýslu og á einnig að vera leiðarljós stjórnmálanna.

Viðreisn þarf að sýna hvað hún getur

Viðreisn hefur mikilvægu hlutverki að gegna í íslenskum stjórnmálum. Frjálslynd samfélagssýn, trú á einstaklinginn, öflugt atvinnulíf og alþjóðlegt samstarf eiga fullt erindi við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.

En við þurfum að gera meiri kröfur til okkar sjálfra. Við þurfum að velja til forystu fólk sem hefur bæði sannfæringu og hæfni til að framkvæma stefnuna. Við þurfum að forgangsraða verkefnum, setja okkur mælanleg markmið og gera reglulega grein fyrir árangrinum.

Við þurfum líka að vera óhrædd við að ræða það sem betur má fara innan flokksins. Málefnaleg gagnrýni og opin umræða eiga að styrkja okkur, ekki veikja.

Ég vil sjá Viðreisn verða enn öflugra stjórnmálaafl sem fólk treystir til að leiða breytingar. Flokk sem sýnir í verki að frelsi, lýðræði, mannréttindi og ábyrgð séu ekki aðeins hugsjónir heldur leiðarljós í daglegum störfum og ákvörðunum.

Það er sú Viðreisn sem ég vil vinna að.

Þegar upp er staðið verður Viðreisn ekki dæmd af því hversu góð stefnuskráin er, heldur af því hvort okkur tekst að breyta henni í betra samfélag til framtíðar.

Höfundur er f ormaður Öldungaráðs Viðreisnar og með MS í stjórnun og stefnumótun – Árangursrík stjónsýsla.




Skoðun

Sjá meira


×