Skoðun

Mun Ís­land missa af hundruðum milljarða?

Einar Örn Ólafsson, Daði Pálsson, Jón Kjartan Jónsson, Steinþór Pálsson og Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifa

Fyrirtæki í landeldi hafa umfangsmikil fjárfestingaráform til næstu ára. Takist þau áform getur orðið til ný og öflug útflutningsgrein sem skapar verðmæti, störf og skatttekjur um land allt. Þetta er uppbygging sem skiptir Ísland máli.

Grunnurinn hefur þegar verið lagður. Innlendir og erlendir fjárfestar hafa lagt vel á 200 milljarða króna í uppbyggingu landeldis á Íslandi. Þær fjárfestingar hafa verið gerðar í þeirri trú að viðeigandi lagaumgjörð yrði tryggð, enda er landeldi einn af hornsteinum atvinnustefnu stjórnvalda. Skortur á skýrum og fyrirsjáanlegum lagaramma getur hins vegar komið í veg fyrir að frekari uppbygging verði að veruleika.

Fjárfestar, bankar og alþjóðleg fyrirtæki taka ákvarðanir til áratuga og þurfa því að geta treyst á stöðugt og fyrirsjáanlegt regluverk. Í dag ríkir óvissa um landeldi á Íslandi vegna þess að framtíðarlagaumgjörð greinarinnar er óskýr og skortir þann fyrirsjáanleika sem fjárfestingar af þessari stærðargráðu krefjast.

Tafir á skýrum lagaramma hafa raunverulegar afleiðingar. Bankar og fjárfestar halda að sér höndum og ákvarðanir frestast. Uppbygging innviða tefst, fjármagn verður dýrara og erlendir fjárfestar leita á aðra markaði þar sem meiri fyrirsjáanleiki ríkir.

Stjórnvöld hafa sjálf skilgreint landeldi sem mikilvæga atvinnugrein til framtíðar. Samt hefur Alþingi enn ekki tryggt atvinnugreininni þá lagaumgjörð sem hún þarf til að vaxa og dafna. Við spyrjum, hvernig má það vera?

Fyrirtækin geta byggt upp starfsemi, aflað fjármagns og tekið þá áhættu sem fylgir uppbyggingu. Alþingi ber hins vegar ábyrgð á því að atvinnugreinin búi við traustan og skýran lagaramma. Með áframhaldandi óvissu um framtíðarlagaumgjörð greinarinnar hefur Alþingi ekki staðið undir þeirri ábyrgð né þeim væntingum sem stjórnvöld hafa skapað.

Við köllum eftir því að Alþingi tryggi að heildstæð lagaumgjörð fiskeldis taki gildi sem fyrst og taki mið af ólíkum forsendum landeldis og sjóeldis. Ísland hefur einstakt tækifæri til að byggja upp nýja og öfluga útflutningsgrein. Hættan er annars að fjármagnið leiti annað, ekki vegna skorts á vilja, þekkingu eða fjárfestingaráformum fyrirtækjanna, heldur vegna seinagangs Alþingis við að tryggja greininni skýra lagaumgjörð.

Höfundar eru forsvarsmenn fjögurra af stærstu landeldisfyrirtækjum Íslands og framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Fyrirtækin fjögur eiga öll aðild að landeldisdeild samtakanna.

Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water 

Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxey 

Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja Fiskeldis 

Steinþór Pálsson, forstjóri Thor Salmon 

Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands




Skoðun

Sjá meira


×