Skoðun

Málshraðasögur Dvalar­leyfi

Eva Hauksdóttir skrifar

Þann 6. febrúar 2024 barst Útlendingastofnun umsókn um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland. Umsækjandi hafði oft dvalist á Íslandi og hafði tvisvar fengið dvalar- og atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldutengsla. Forsendur fyrir dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldutengsla voru brostnar í febrúar 2024 en umsækjandinn taldi margt annað mæla með því að honum yrði veitt dvalarleyfi á Íslandi.

Mánuðir liðu án þess að nokkuð gerðist. Ég kvartaði til Umboðsmanns Alþingis í mars 2026 en Útlendingastofnun hafði þá ekki svarað fyrirspurnum um stöðu málsins í meira en ár. Umboðsmaður brást skjótt við og sendi Útlendingastofnun bréf. Stofnunin sagðist ætla að afgreiða málið fyrir lok mánaðarins og umboðsmaður lokaði málinu. Engin ákvörðun var birti í lok mars og ekki í apríl og leið svo sumarið. Ég kvartaði aftur til umboðsmanns í september.

Umsóknin var afgreidd 13. október 2026, tveim árum og átta mánuðum eftir að Útlendingastofnun fékk hana til meðferðar. Maðurinn hefur ekki einu sinni verið beðinn afsökunar á þessum töfum. Umsækjandinn gæti kært ákvörðun Útlendingastofnunar til Kærunefndar útlendingamála. En hvað ætli sú málsmeðferð tæki langan tíma? Það er ómögulegt að segja en þess má geta að nefndin er enn ekki búin að úrskurða í málinu sem ég sagði frá hér: https://www.visir.is/g/20262930170d/malshradasogur

Höfundur er lögmaður.




Skoðun

Sjá meira


×