Íslenski boltinn

Draumurinn að þjálfa Blika

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari Þórs og býst við að halda áfram því starfi. Hann neitar því ekki að draumur hans sé að þjálfa Breiðablik einn daginn.
Sigurður Heiðar Höskuldsson er þjálfari Þórs og býst við að halda áfram því starfi. Hann neitar því ekki að draumur hans sé að þjálfa Breiðablik einn daginn. Vísir/Hulda Margrét

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, segir alla einbeitingu sína vera á næsta tímabili norðanliðsins sem hélt sæti sínu naumlega í Bestu deildinni síðustu helgi. Hann hefur ekki heyrt frá Breiðabliki en ætti erfitt með að segja nei bærist tilboð úr Kópavogi.

Sigurður undirbýr nú stutt frí og segist ætla að reyna eins og hann getur að kúpla sig út úr boltanum, eins langt og það nær. Leikmannamál og undirbúningur næsta tímabils sé kominn á fullt.

Hann segist hlakka til að hefja nýtt undirbúningstímabil og byggja ofan á frábæran árangur Þórs á nýliðnu tímabili þar sem liðinu tókst að halda sér í Bestu deildinni með sigri á FH í lokaumferðinni síðasta laugardag.

Sigurður aftur á móti meðal þeirra sem orðaður er við lausa þjálfarastöðu hjá Breiðabliki eftir uppsögn Ólafs Inga Skúlasonar í gær.

Aðspurður um það hvort hann hafi heyrt frá Blikum er svarið einfalt:

„Nei.“

En hefðir þú áhuga á því starfi, skyldi það bjóðast?

„Ég er náttúrulega uppalinn Bliki og mig hefur alltaf dreymt um að þjálfa Blika. En ég held að það sé enginn áhugi af þeirra hálfu um það. Þess utan er ég bara mjög ánægður þar sem ég er hjá Þór og spenntur fyrir því að komast aftur af stað fyrir næsta tímabil,“ segir Sigurður í samtali við íþróttadeild Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×