Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Agnar Már Másson skrifar 29. október 2026 20:57 Hanna Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti Treble-teyminu verðlaunin. Aðsend Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun ársins 2026 en félagið hefur þróað og markaðssett hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi.
Tæknin nýtist meðal annars við hönnun bygginga, þróun hljóðbúnaðar og gervigreindar sem þarf að geta skynjað og túlkað hljóð í umhverfi sínu. Frá þessu er greint í tilkynningu en verðlaunin voru veitt á Nýsköpunarþingi í dag. Treble Technologies var stofnað árið 2020 og hefur byggt upp alþjóðlega starfsemi með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar hugbúnað sem tæknifyrirtæki, hönnuðir og aðrir sérfræðingar nýta til að herma eftir því hvernig hljóð berst og hegðar sér í raunverulegu umhverfi. Á undanförnum árum hefur Treble nýtt hljóðhermunartækni sína til að styðja við þróun tækja og gervigreindar sem geta skynjað og skilið hljóð við raunverulegar aðstæður, að því er fram kemur í tilkynningunni. Í umsögn dómnefndar segir að Treble Technologies sýni með eftirtektarverðum hætti hvernig íslenskt rannsóknar- og þróunarstarf geti lagt grunn að alþjóðlegu tæknifyrirtæki. Með sérhæfðri þekkingu á sviði hljóðhermunar hafi fyrirtækið þróað tækni sem hafi skapað því sterka sérstöðu á alþjóðlegum markaði. Hröð þróun gervigreindar hafi opnað nýja möguleika fyrir tækni Treble og fyrirtækið hafi sýnt framsýni með því að nýta þekkingu og tækni sem upphaflega var þróuð fyrir hljóðhermun til að mæta nýjum þörfum á sviði gervigreindar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Nýsköpunarsjóðnum Kríu, Íslandsstofu og Hugverkastofu til félaga sem skara fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim tengslum milli rannsókna, hugvits og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.
Nýsköpun Gervigreind Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira