Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar 1. nóvember 2026 08:03 Um miðjan tíunda áratuginn markaði Svíþjóð tímamót í baráttunni gegn vændi með lagabreytingu sem sneri hefðbundinni hugsun á hvolf. Í stað þess að refsa brotaþolum vændis ákváðu sænsk stjórnvöld að gera vændiskaup refsiverð, en aflétta refsiábyrgð af þeim sem selja aðgang að eigin líkama. Þessi nálgun, sem síðar hefur verið kölluð norræna módelið, byggir á einfaldri en róttækri hugmynd: Vændi er ekki starf eins og hvert annað, heldur birtingarmynd kynbundins ofbeldis og kynjamisréttis. Kjarninn í hugmyndafræði norræna módelsins er sá að vændi getur ekki verið jafnræðissamband tveggja aðila svo lengi sem annar aðilinn borgar fyrir aðgang að líkama hins. Það er ekki hægt að kaupa samþykki til kynferðislegra athafna. Valdaójafnvægið er innbyggt í viðskiptin sjálf. Sá sem kaupir hefur fjárhagslegt vald yfir þeim sem selur, og oftar en ekki er um að ræða fólk í viðkvæmri stöðu – vegna fátæktar, vímuefnavanda, áfallasögu eða skorts á öðrum valkostum. Þess vegna dugar ekki að refsa kaupendum einum og sér. Hið opinbera verður einnig að tryggja raunverulega valkosti og úrræði, svo sem húsnæði, félagslegan og fjárhagslegan stuðning, meðferð og aðstoð við nám og atvinnu, þannig að enginn þurfi að selja aðgang að líkama sínum til að komast af. Norræna módelið hafnar því að vændi sé frjálst val eins og hvert annað starfsval. Þess í stað er litið á það sem samfélagslegt vandamál sem endurspeglar og viðheldur kynjamisrétti. Með því að refsa eingöngu kaupendum, en ekki þeim sem eru í vændi, er reynt að draga úr eftirspurninni sem heldur vændismarkaðnum gangandi, á sama tíma og þeim sem eru í viðkvæmustu stöðunni er ekki refsað fyrir það. Þessi nálgun hefur breiðst út frá Svíþjóð til Noregs, Íslands, Frakklands, Írlands og fleiri landa. Á Íslandi var löggjöf í anda norræna módelsins samþykkt árið 2009 og nú er komið að því að taka næsta skref. Því miður hafa afleiðingar fyrir kaupendur verið litlar sem engar og þessi afbrot því nánast umborin auk þess sem tilfinnanlega hefur skort á félagslega aðstoð til brotaþola vændis. Gagnrýnendur norræna módelsins halda því fram að löggjöfin ýti vændi neðanjarðar og geri það hættulegra. Reynslan frá löndum sem hafa breytt lögum sínum í þessum anda bendir til hins gagnstæða. Í úttekt sænskra stjórnvalda árið 2010 kom fram að götuvændi hefði helmingast eftir að bannið tók gildi, ekkert benti til þess að vændi hefði færst í auknum mæli á netið og að áhyggjur af því að staða fólks í vændi myndi versna hefðu ekki gengið eftir. Að sama skapi virðist hafa dregið úr mansali. Reynslan sýnir einnig að með markvissri löggæslu sem byggir traust við brotaþola vændis, útgönguleiðum fyrir þau sem vilja komast út úr vændi og samfélagslegri viðhorfsbreytingu má komast langt til að vinda ofanaf vændi. Stígamót styður eindregið hugmyndafræði norræna módelsins vegna þess að hún setur ábyrgðina þar sem hún á heima – hjá þeim sem kaupa aðgang að líkömum annarra – og viðurkennir um leið að vændi er birtingarmynd ofbeldis. Við styðjum því nýtt frumvarp dómsmálaráðherra um að herða refsingar fyrir kaup á vændi og hætta umburðarlyndi við þá sem brjóta af sér. Frumvarpið eitt og sér dugar þó ekki. Hið opinbera þarf einnig að auka framlög til málaflokksins og tryggja fólki í vændi félagslegan og fjárhagslegan stuðning, svo það eigi raunverulega leið út. Öll eru velkomin til Stígamóta, óháð reynslu sinni og því hvernig þau skilgreina hana. Brotaþolar fá ráðgjöf á eigin forsendum. Símanúmer Stígamóta er 562 6868 og netfangið stigamot@stigamot.is. Höfundur er talskona Stígamóta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Drífa Snædal Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun