Skoðun

Eru and­stæðingar þjóðar­morðs í Palestínu sér­legir stuðnings­menn Hamas-sam­takanna?

Finnur G Olguson skrifar

Sú einkennilega staða er komin upp að fólk sem réttlætanlega hefur fyllst viðbjóði gagnvart þeim yfirgengilegu þjáningum sem palestínskt fólk er beitt daglega af hálfu kúgara sinna hefur ítrekað verið stillt upp við vegg af hálfu manna sem eru af sjálfum sér taldir „málsmetandi“ í íslenskri umræðu, og neyðst til að verjast ásökunum um að ganga erinda Hamas-samtakanna. Þannig gera þessir skörungar tilraun til að láta líta svo út fyrir að þessi spurning sem öllu skynsömu fólki finnst út í hött sé í raun miðlæg og áleitin. Tökum af allan vafa – hún er það ekki.

Óheiðarlegur málflutningur

Látum vera þá staðreynd að það er ekki jaðarsettur minnihluti heldur stór meirihluti íslensks almennings sem hefur, í ljósi þess augljósa misréttis og hræðilega ofbeldis sem Palestínumenn eru beittir af „vinaþjóð okkar“, fundið sig knúinn til að, ef ekki beinlínis taka afstöðu með Palestínumönnum, þá í öllu falli fyllast vandlætingu og ógeði yfir framgöngu Ísraels. Látum vera að meðal þess meirihluta finnst auðvitað fólk úr öllum stéttum, með mismunandi bakgrunn og sem að miklu leyti aðhyllist ólíkar stjórnmálaskoðanir, en á það sameiginlegt að geta ómögulega litið undan þegar réttlætiskennd þess er misboðið. Látum ennfremur vera að þessi hópur hefur vaxið frekar en minnkað í takt við það hvernig þær áhyggjuraddir sem hafa um áratugabil bent á hvert ísraelskt samfélag er að stefna – í átt að sadísku aðskilnaðarríki knúnu áfram af trúarofstæki, ofbeldishneigð og rasisma – hafa reynst hafa haft rétt fyrir sér í öllum grundvallaratriðum. Þrátt fyrir að við látum það allt vera hljóta allar skynsemisverur að geta verið sammála um að sú atlaga að stuðningsfólki Palestínu sem byggist á meintum stuðningi þeirra við Hamas eða hver önnur palestínsk samtök er bæði óheiðarleg og gerð til að drepa málinu á dreif. Spurningin hvers vegna menn á borð við Stefán Einar Stefánsson hlaðvarpsstjórnanda, Hannes Hólmstein Gissurarson og Elliða Vignisson bæjarstjóra sjá ástæðu til að dreifa athygli fólks frá óréttlæti og þjóðarmorði er kannski meira aðkallandi, en þá einungis fyrir það fólk sem hefur séð ástæðu til að taka eitthvað mark á þeim hingað til eða, í tilfelli Elliða, er í þeirri stöðu að þurfa að lúta ákvörðunum hans innan þess sveitarfélags þar sem hann gegnir ábyrgðarhlutverki. Ekki öfunda ég það.

En auðvitað er þetta þekkt lúabragð deyjandi málstaðar, að reyna í örvæntingu að klína langsóttri afstöðu á andstæðinginn – að ef hann styðji eitt þá hljóti hann að styðja annað – en rökin eru jafnléleg fyrir því. Við getum til dæmis án vandkvæða haldið því fram að barátta Írlands til sjálfstæðis hafi verið réttlætanleg án þess að við séum umsvifalaust gerð ábyrg fyrir ofbeldisverkum Írska lýðveldishersins. Það er heldur engin mótsögn falin í því að taka afstöðu gegn innrásarstríði Pútíns í Úkraínu án þess að finnast maður á sama tíma þurfa að gangast í ábyrgð fyrir pólitíska stefnu úkraínskra stjórnvalda. Eða ættum við að gera það að almennri reglu að við lokum augunum fyrir þjáningum fólks sem hefur aðrar skoðanir en við? Ég er ekki viss um að Stefán, Hannes og Elliði riðu feitum hesti frá því að orða afstöðu sína þannig.

Vopnvæðing frelsisbaráttu

Á sama hátt hafa ýmsir bent á það sem þeim finnst vera sú gríðarlega mótsögn sem felst í virkri þátttöku hinsegin fólks hér á landi og víðar í baráttunni fyrir frjálsri Palestínu; afstaða Palestínumanna til LGBTQ-málefna er nefnilega ekki sú sama og hér á landi. Hvað er hægt að segja gegn þessu, eða réttara sagt, hvar á maður að byrja? Hvað getum við lesið á milli línanna í svona siðferðislegri hentistefnu gagnvart þjáningum annarra? Á hinsegin fólk að fylkja sér um þjóðarmorð á fólki sem hefur ekki notið frjálslyndis í stjórnarfari? Ætti það að hafa sérstaka ánægju af að sjá sprengjur falla í Afganistan eða Írak? Horfa með gleði á börn svelta í Jemen? Er þetta kannski allt gert í nafni hinsegin samfélagsins svo tveir karlmenn geti einn daginn spásserað hönd í hönd í gegnum rústirnar á Gaza framhjá lífvana barnslíkömum?

Auðvitað er þessi afstaða fáránleg og, ef maður vill virkilega rýna í þetta, ekkert annað en tilraun til að þagga niður í hinsegin röddum og sjóða fólk niður í tiltekna þætti sjálfsmyndar þeirra og ekkert annað. Að vopnvæða baráttu hinsegin fólks fyrir eigin réttindum og nota það til að réttlæta annars konar kúgun er einstaklega fyrirlitleg hegðun. Er ekki ein ástæðan fyrir áberandi þátttöku hinsegin einstaklinga á Íslandi í baráttunni fyrir réttindum flóttafólks og gegn þjóðarmorði einmitt sú að þeir eru sérlega vakandi fyrir óréttlæti og hafa verið brýndir til verka í gegnum eigin kröfur um mannsæmandi líf?

Nákvæmlega það sama má segja um tilraunir þjóðarmorðssinna til að vopnvæða kvenfrelsi, nokkuð sem hingað til getur ekki talist hafa verið á topplistanum yfir áherslumál flestra þeirra – ekki fyrr en hægt er að nota það sem ódýrt mælskulistarbragð. Við lestur bókarinnar Interviews with radical Palestinian women (Shoal Collective, 2021) verður lesandanum fljótt ljóst hversu takmarkaður og letilegur svona svarthvítur hugsunarháttur er og ónýtur til þess að átta sig á aðstæðunum eins og þær í raun eru. Konurnar sem teknar eru tali í bókinni hafa allar haft sig í frammi í palestínsku samfélagi, bæði á Vesturbakkanum, Jerúsalem og á Gaza, sem baráttukonur fyrir auknu frelsi kvenna innan þess. Vissulega hafa þær allar mætt mótlæti fyrir tilstilli trúarkredda og hins afturhaldssama samfélags sem þær fæddust inn í. Það er þó sá raunveruleiki sem allar framsæknar kvennahreyfingar um víða veröld hafa þurft að mæta, einnig á Vesturlöndum. Þrátt fyrir það sameinast þessar konur og hið víðara palestínska þjóðfélag heilshugar í baráttu sinni gegn hernámi Ísraelsmanna, nokkuð sem þessar róttæku konur sjá í grófum dráttum sem þeirra helsta Þránd í Götu á vegi þeirra til frelsis og helsta orsakavald ofbeldisins sem þær, fjölskyldur þeirra og samfélag eru beittar á hverjum degi. Ef þessir framsæknu, hugrökku einstaklingar sem verða daglega vitni að meira óréttlæti fyrir morgunmat en Elliði Vignisson á allri sinni ævi finnst þær geta barist fyrir tilverurétti Palestínumanna á sama tíma og þær berjast gegn kúgandi öflum innan palestínsks samfélags og ekki fundið þar neina innbyrðis mótsögn, réttilega, ættum við öll að geta það.

Félagslegur sadismi

Nú er í gangi öflug bylgja ákveðins félagslegs sadisma hvers háværustu talsmenn grípa hvert tækifæri til að telja okkur hinum trú um að líf ákveðinna hópa fólks séu minna virði en líf annarra og að þjáningar þeirra séu okkur óviðkomandi. Það hlægilega er að sömu einstaklingar líta gjarnan á sig sem öfluga málsvara „kristinna gilda“ sem eru, að þeirra mati, umburðarlyndari og frjálslyndari en múslima – og tala svo á þeim grundvelli fyrir réttlætingu þess að myrða þá, allt niður í lítil börn. Talandi um innbyrðis mótsagnir. Þetta hefur – þvert á það sem þeir vilja telja okkur trú um á sínum yfirvegðari augnablikum – ekki snefil að gera með raunverulega uppbyggilega umræðu um kosti og galla innflytjendastefnunnar, kosti og galla vestræns samfélags eða upplýst skoðanaskipti um trúarbrögð, heldur allt að gera með pólitíska siðferðisfimleika manna sem segjast í flestum tilvikum vera frjálshyggjumenn, en finnst þeir, af einhverjum ástæðum sem öllum er ráðgáta, þurfa að verja ríkisrekið ofbeldi, eignaupptöku ísraelska ríkisins á eignum Palestínumanna, gyðinglegt trúarofstæki og morð á saklausum borgurum.

Svo til þess að svara spurningunni þá er ég ekki stuðningsmaður Hamas – hugmyndafræðilega eiga samtökin líklega meira sameiginlegt með Miðflokknum en frjálslyndum vinstrimanni – en ég tel mig skilja að samtökin hefðu líklega ekki myndast og orðið jafnöflug nema einmitt undir hernámi Ísraelsmanna. Á meðan á hernáminu stendur eru allar spurningar um ætlaðan stuðning við hin og þessi samtök út fyrir efnið. Við hefðum ekki þurft að kvitta upp á stefnu Kommúnistaflokks S-Afríku til að taka þátt í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni. Við hefðum ekki þurft að stoppa okkur af og spyrjast fyrir um nákvæma afstöðu Tútsa til transmálefna til þess að gera allt sem hægt hefði verið að gera til að koma í veg fyrir að hundruðum þúsunda þeirra hefði verið slátrað árið 1994. Ef maður skilur það ekki, þá er nú bara eitthvað að.

Lifi frjáls Palestína, nú og um alla framtíð.

Höfundur er smiður og meistaranemi í heimspeki.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×