Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar 30. október 2026 10:32 Í nýlegri grein sinni, „Farsælt ferðalag fólks og fisks” á visir.is, færir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, sterk rök fyrir því að sjávarútvegur og ferðaþjónusta styðji hvort annað. Þar erum við sammála, sjávarútvegur og ferðaþjónusta eiga mjög vel saman. Í greininni gleymdist þó að taka fram hvers konar sjávarafurðir var verið að vísa í. Öll dæmin snúa að veiðum á villtum fiski. Því finnst mér rétt að árétta að samlegð ferðaþjónustu og sjálfbærs sjávarútvegs er mikil. Því hefði verið gott að taka fram að sjálfbærar veiðar á villtum fiski styðji við ferðaþjónustu. Hvergi er minnst á laxeldi í opnum sjókvíum, og ekki að ástæðulausu: það vinnur þvert á móti gegn hagsmunum ferðaþjónustunnar, SFS og ekki síst orðspori Íslands. Náttúran er það dýrmætasta sem við eigum Heiðrún bendir á að ferðamenn komi ekki til Íslands vegna matarins. Í könnun Maskínu sem hún vitnar í nefndu aðeins 15% ferðamanna mat sem þátt í ákvörðun sinni um Íslandsferð. En hvað með hin 85%? Óhætt er að fullyrða að ósnortin náttúra Íslands vegi þar þyngst í ákvarðanatöku ferðamanna um komu sína til landsins. Sú náttúra á undir högg að sækja ef opnar sjókvíar blasa við í friðsælum fjörðum hringinn í kringum landið. Undanfarin fjögur ár hef ég byggt upp ferðaþjónustufyrirtæki þar sem forsenda upplifunnar gesta okkar er ósnortin náttúra utan alfaraleiðar og eru vinsælustu ferðirnar í Seyðisfirði. Viðskiptavinum sem fagna því að ekki sé eldi í opnum kvíum í firðinum fjölgar hratt og tel ég þá afstöðu endurspegla aukna vitundarvakningu neytenda um greinina. Eins virðast sífellt fleiri forðast að kaupa vörur úr sjókvíaeldi. Vegna þessa munu opnar sjókvíar í firðinum gjörbreyta rekstrargrundvelli okkar og gætu haft neikvæð áhrif á afkomu fyrirtækisins. Það er nefnilega þannig að gestirnir okkar koma til Íslands til að upplifa ósnerta náttúru og kyrrð. Ímynd íslensks sjávarfangs hvílir á sömu stoðum og íslenska ferðaþjónustan: villtu sjávarfangi, hreinu hafi, óspilltri náttúru og sjálfbærum veiðum. Það er sú ímynd sem ferðamenn koma til að upplifa. Laxeldi í opnum sjókvíum er ekki hluti af henni eins og kemur skýrt fram í rannsóknarvinnu Ian Urbina fyrir New York Times í greininni „The Dirty Secret Behind the Farmed Fish You Eat.“ Orðsporið í hættu Heiðrún hóf grein sína á því að minna okkur á að orðspor landsins og afurða þess ráði miklu um árangur útflutningsgreina. Það er hárrétt, og einmitt þess vegna eigum við að leggja okkur fram um að allur sjávarútvegur á Íslandi sé unnin í sátt við náttúruna. Skortur á gögnum er ekki grænt ljós Því hefur einnig verið haldið fram að engin gögn sýni að sjókvíaeldi og ferðaþjónusta eigi ekki samleið. Skortur á gögnum gefur ekki grænt ljós til að halda leyfisveitingum áfram. Ef stjórnvöld telja gögnin vanta er það þeirra hlutverk að afla þeirra, áður en frekari leyfi eru veitt en ekki eftir á. Hér er líka gott að minna á að 75% Seyðfirðinga hafa lýst yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugað sjókvíaeldi í firðinum og ríflega 13 þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli. Hér þurfa stjórnvöld eins og Heiðrún bendir réttilega á að horfa á heildarmyndina og hlusta á fólkið í landinu. Getum við ekki öll verið sammála um það? Verjum störfin Því er gjarnan haldið fram að sjókvíaeldi skapi störf á landsbyggðinni. Á landsbyggðinni eru líka störf í ferðaþjónustu og tengdum greinum, við stangveiði og í hefðbundnum sjávarútvegi sem gætu verið í hættu. Laxveiðiár draga til sín verðmæta gesti og skapa tekjur sem dreifast um sveitirnar. Á Fáskrúðsfirði t.d. eins og í mörgum öðrum sjávarplássum, eru gerðir út línubátar, og línufiskur er eftirsótt gæðavara sem selst á góðu verði á mörkuðum, er það ekki t.d. eitthvað sem við ættum frekar að gera á Seyðisfirði? Sjávarútvegur af því tagi fellur fullkomlega að þeirri mynd sem Heiðrún dregur upp: hágæða afurð, störf í heimabyggð og töluvert minni árekstrar við náttúruna. Hagsmunir sjálfbærs sjávarútvegs og ferðaþjónustu fara nefnilega vel saman. Heiðrún lýkur grein sinni á því að markmið stjórnvalda hljóti að vera að styrkja þær stoðir sem verðmætasköpunin byggist á, frekar en að veikja þær. Við sem störfum í ferðaþjónustu tökum að ég held öll heils hugar undir það. Sterkasta stoðin, bæði fyrir ferðaþjónustu og sjávarútveg er ósnortin náttúra Íslands. Höfundur er leiðsögumaður og hönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fiskeldi Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun