Skoðun

Hvað hafa börnin gert fyrir okkur?

Greint var frá því á dögunum að fjárhagsstaða Hafnarfjarðar væri grafalvarleg. Ljóst var að fara þyrfti í róttækar sparnaðaraðgerðir og brást bæjarstjórn við með því að segja upp 23 starfsmönnum. Við vitum öll að þegar hart er í ári þarf að gæta að hverri krónu. Það skiptir hins vegar máli hvar niðurskurðurinn kemur niður. Þrátt fyrir að bæjarstjórinn hafi sagt að þetta myndi ekki hafa áhrif á lögbundna þjónustu er ljóst að áhrifin verða veruleg, líka á lögbundna þjónustu.

Af þessum 23 störfum voru 10 á mennta- og lýðheilsusviði og 9 á fjölskyldu- og barnamálasviði. Störfin tengjast með beinum hætti þjónustu við börn og fjölskyldur. Það vekur því alvarlegar spurningar um forgangsröðun bæjarstjórnar þegar þjónusta við börn og fjölskyldur er sá málaflokkur sem tekur mestan skellinn.

Frá Brúnni til farsældar

Árið 2016 hóf bærinn innleiðingu nýrrar hugmyndafræði í þjónustu við börn og fjölskyldur. Verkefnið BRÚIN, sem byggir á hugmyndafræði um snemmtækan stuðning fyrir börn, var sett á laggirnar haustið 2018. Markmiðið er að veita stuðning strax við fyrstu vísbendingar um vandamál áður en nauðsynlegt er að grípa inní með umfangsmikilli sérfræðiþjónustu eða aðkomu barnaverndar. Með verkefninu var aukin fagþekking, þétt samstarf milli kerfa með áherslu á snemmtækan stuðning. Um árabil var Hafnarfjörður kynntur sem sveitarfélag í fararbroddi í snemmtækum stuðningi og samþættri þjónustu við börn.

Fjórum árum síðar tóku gildi lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Með þeim varð samþætting þjónustu, snemmtæk viðbrögð og samstarf milli þjónustukerfa ekki aðeins fagleg stefna heldur lögbundin skylda. Sveitarfélögum var þannig falið skýrt hlutverk í að tryggja að börn og fjölskyldur fengju viðeigandi stuðning og rynnu ekki á milli kerfa. Innleiðing laganna var studd fjárhagslega af ríkinu en sá stuðningur rennur út um áramótin. Þá kemur í ljós hvernig og hvort sveitarfélög ætla sér að halda áfram að framfylgja þessum nýju lögum.

Í Hafnarfirði virðist svarið augljóst. Teymi farsældar: lagt niður, alþjóðateymi: lagt niður, brúarstöður: lagðar niður og sálfræðingar fjölskyldu- og barnamálasviðs látnir fara. Þarna fækkar starfsfólki sem sinnir börnum og fjölskyldum.

Mikil sérþekking sem byggst hefur upp á undanförnum árum glatast með þessum ákvörðunum. Það blasir við að þetta er ekki bara niðurskurður fjármuna heldur er verið að veikja þjónustu. Þjónustu sem á að grípa börn og fjölskyldur áður en vandinn stigmagnast.

Börn og fjölskyldur sem eiga geta treyst á þessa þjónustu standa nú frammi fyrir úrræðaleysi, enn lengri biðtíma og óvissu. Aftur. Fólk sem síst þarf á því að halda.

Ódýrara í dag, dýrara á morgun

Tilhneigingin við niðurskurð til forvarna- og stuðningsþjónustu er að sá kostnaður hverfur ekki, hann færist bara til. Vandamálin hverfa ekki þau verða bara alvarlegri, flóknari og dýrari. Fjölskylda sem hefur fengið stuðning á fyrsta stigi er ólíklegri að þurfa umfangsmeiri, flóknari og dýrari þjónustu. Barn sem fær aðstoð strax er ólíklegra að þurfa sérhæfð og dýrari úrræði seinna meir. Lausn á fyrstu stigum kemur í veg fyrir að mál endi á borði barnaverndar, sem er mjög dýrt og íþyngjandi úrræði. Barnavernd á ekki að vera fyrsta úrræði, hún á að vera lokaúrræðið. Þar eru nú þegar fjölmörg mál sem snemmtæk íhlutun hefði getað komið í veg fyrir.

Ríkið og sveitarfélög deila um ábyrgð og fjármögnun úrræða. Þrátt fyrir þá lagaskyldu ríkisins hefur úrræðaleysi verið viðvarandi þegar kemur að sérhæfðum meðferðar- og greiningarúrræðum fyrir börn. Sveitarfélög hafa því þurft að leita til einkarekinna búsetuúrræða. Sum þeirra hafa skilað góðum árangri og verið rekin af heilindum og fagmennsku á meðan önnur hafa sætt gagnrýni. Kostnaðurinn er hins vegar alltaf mikill.

Inngilding er ekki munaðarvara

Meðal þeirra úrræða sem hafa verið skorin niður eru alþjóðateymi og stöður brúarsmiða, sem þjónusta nýja Hafnfirðinga sem eru af erlendum uppruna. Þegar nýjar fjölskyldur flytja til landsins þurfa þær að læra nýtt tungumál, flókin kerfi skóla, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og tómstunda. Stuðningur við þátttöku og inngildingu er ekki munaðarvara heldur forsenda þess að foreldrar og börn geti aðlagast samfélaginu okkar.

Ef við veitum ekki þann stuðning aukast líkur á félagslegri einangrun, brottfalli frá skipulögðu starfi og veikari tengingu við samfélagið. Afleiðingarnar geta komið fram síðar, bæði hjá einstaklingum og samfélaginu öllu. Stuðningur við inngildingu er ekki aðeins mannréttindamál. Hann er einnig fjárhagslega skynsamlegur. Samfélög sem ná að styðja fjölskyldur til virkni og þátttöku greiða síður kostnaðinn síðar í formi félagslegrar einangrunar, brottfalls og aukinnar þjónustuþarfar.

Það er því mikið áhyggjuefni þegar dregið er úr þessum stuðningi á sama tíma og íbúum fjölgar hratt og samfélagið verður sífellt fjölbreyttara.

Hvers konar samfélag viljum við vera?

Hafnarfjörður telur yfir 32 þúsund íbúa og stefnt er að áframhaldandi vexti á komandi árum. Ný hverfi rísa, nýjar fjölskyldur flytja inn og metnaðarfull áform eru um frekari uppbyggingu. En fjölgun íbúa á ekki að vera árangur í sjálfu sér. Samfélag verður ekki sterkara vegna þess eins að íbúum fjölgi. Það verður sterkara þegar það stendur vörð um börnin sín, styður foreldra áður en vandinn verður óviðráðanlegur og fjárfestir í forvörnum fremur en að greiða margfalt hærra verð síðar.

Það er auðvelt að skera niður þjónustu sem birtist ekki strax í excel-skjölum og það er erfitt að setja verðmiða á vellíðan barna. Rannsóknir hafa hins vegar margoft sýnt fram á að snemmtæk íhlutun fækkar alvarlegum vandamálum og alvarleg vandamál eru erfið og dýr. Þetta snýst því ekki aðeins um fjárhagsáætlun næsta árs. Þetta snýst um þann kostnað sem birtist í excel-skjölum framtíðarinnar og hvort bæjarstjórn hafi þá framtíðarsýn. Um hvað við teljum mikilvægast þegar þrengir að.

Þegar þrengir að er eðlilegt að velta steinum, skera fituna af og forgangsraða verkefnum. Þessar ákvarðanir kalla á skýr svör. Er stefna bæjarstjórnar sú að draga úr snemmtækum stuðningi, samþættri þjónustu og forvörnum þegar þrengir að?

Ef svo er þá er verið að fara þvert gegn þeirri hugmyndafræði sem Hafnarfjörður hefur byggt upp síðasta áratuginn og gegn þeirri stefnu sem ríkið hefur sjálft lögfest.

Við ættum því kannski að snúa spurningunni við, ekki hvað börnin hafa gert fyrir okkur. Heldur: Hvað ætlum við að gera fyrir börnin?

Félagsráðgjafi hjá fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðar




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×