Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar 1. nóvember 2026 15:02 Nú eru jólaljósin farin að kvikna og auglýsingar um jólagjafir birtast hver á fætur annarri á samfélagsmiðlum. Smám saman fyllist samfélagið af tilhlökkun, gluggarnir lýsast upp og við erum minnt á samveruna sem gerir þennan árstíma svo sérstakan. En á sama tíma situr fólk við eldhúsborðið og reiknar út hvernig það eigi að greiða næsta reikning, kaupa í matinn og láta tekjurnar endast út mánuðinn. Fyrir suma eru jólin tími gleði og eftirvæntingar. Fyrir aðra bætast áhyggjur af jólahaldinu við fjárhagslegt álag sem þegar er til staðar. Hvað kostar hagræðingin í raun? Undanfarnar vikur hafa fréttir af uppsögnum minnt okkur á hversu fljótt óvissa um atvinnu og afkomu getur skapast. Í október var 50 starfsmönnum Reykjavíkurborgar sagt upp í tengslum við hagræðingaraðgerðir og frá júní hefur borgin ákveðið að fækka um samtals 130 stöðugildi. Á sama tíma mældist ársverðbólga 5,9% samkvæmt Hagstofu Íslands. Þótt laun á uppsagnarfresti veiti tímabundið fjárhagslegt öryggi hverfur óvissan um framtíðina ekki. Fólk þarf áfram að standa undir skuldbindingum sínum og velta fyrir sér hvað taki við. Auðvitað þurfa sveitarfélög og opinberar stofnanir að fara vel með almannafé. En fjárhagsleg ábyrgð felst ekki eingöngu í því að lækka útgjöld, heldur einnig að meta afleiðingar ákvarðana til lengri tíma. Störf sem skilgreind eru sem óbein þjónusta geta verið forsenda þess að bein þjónusta virki. Ráðgjöf, samhæfing og faglegur stuðningur eru ekki aðeins kostnaðarliðir í bókhaldi, heldur mikilvægir þættir í starfsemi þjónustukerfa. Ef niðurskurður leiðir til aukins álags, lengri biðar eða þess að ábyrgð færist yfir á fjölskyldur og þjónustuþega hefur kostnaðurinn ekki endilega horfið. Hann kann einfaldlega að hafa færst til. Þess vegna verður að meta raunverulegan árangur hagræðingar út frá samfélagslegum afleiðingum hennar, ekki síður en fjárhagslegum sparnaði. Það er ekki hægt að spara það sem ekki er til Fjárhagslegt óöryggi er þó langt frá því að vera bundið við atvinnumissi. Ungar fjölskyldur standa frammi fyrir háum húsnæðiskostnaði og öðrum nauðsynlegum útgjöldum. Einstæðir foreldrar bera oft einir ábyrgð á framfærslu heimilisins, jafnvel þótt börn þeirra séu orðin lögráða en enn í námi. Aðrar fjölskyldur bera aukinn kostnað vegna veikinda barna og sérstakrar umönnunarþarfar. Námsmenn þurfa að fjármagna menntun sína og daglegt líf, á meðan margir öryrkjar og eldri borgarar hafa takmarkaða möguleika á að auka tekjur sínar. Á sama tíma geta tekjuhærri heimili oft haldið neyslu sinni áfram þrátt fyrir verðhækkanir, á meðan tekjulægri heimili þurfa að draga úr nauðsynlegum útgjöldum. Sama verðhækkun getur þýtt minni sparnað fyrir einn, en frestaða tannlæknisheimsókn eða skert matarinnkaup fyrir annan. Við búum í sama hagkerfi, en upplifum afleiðingar þess á ólíkan hátt. Hér er því ekki aðeins um ólíkan kaupmátt að ræða, heldur ólíkt frelsi til að velja. Það er auðvelt að ætlast til þess að aðrir dragi úr útgjöldum þegar maður þarf sjálfur ekki að velja á milli grunnþarfa. En hvað á fólk eiginlega að skera meira niður þegar það hefur þegar þurft að neita sér um það sem aðrir telja sjálfsögð lífsgæði? Getum við kallað jólin hátíð barnanna? Samkvæmt skýrslunni *Fátækt barna og staða barnafjölskyldna*, sem kynnt var í september, bjuggu um 10.500 börn á Íslandi á heimilum undir lágtekjumörkum árið 2024. Hlutfallið var um 30% meðal barna einstæðra foreldra, samanborið við um 8% barna sem bjuggu með tveimur foreldrum. Þótt hlutfall barna undir lágtekjumörkum hafi lækkað á undanförnum áratugum er munurinn milli fjölskyldugerða enn verulegur. Á bak við þessar tölur eru börn sem alast upp við ólíkar fjárhagslegar aðstæður og hafa þar af leiðandi ekki sömu tækifæri. Við tölum gjarnan um jólin sem hátíð barnanna. En hvað með þau börn sem búa á heimilum þar sem ekki er til fyrir jólagjöfum, hátíðarmáltíð eða jafnvel hráefnum í jólabakstur? Það sem mörgum okkar þykir sjálfsagður hluti jólanna getur verið munaður fyrir aðra. Jólabakstur snýst til að mynda ekki aðeins um smákökur, heldur líka samveru, hefðir og minningar sem börn taka með sér inn í framtíðina. Þegar fjárhagurinn setur jafnvel slíkum einföldum hefðum skorður verður ójöfnuðurinn sýnilegur í fleiru en því sem hægt er að kaupa. Þegar jólin eru liðin og börnin mæta aftur í skólann taka við samtöl um jólagjafir, hátíðarmat og það sem fjölskyldurnar gerðu saman. Fyrir mörg eru þetta ánægjulegar minningar sem gaman er að deila, en fyrir önnur geta sömu samtöl orðið sár áminning um það sem þau fóru á mis við. Sum kunna að þegja eða draga sig í hlé, jafnvel upplifa skömm yfir aðstæðum sem þau hafa enga stjórn á. Þannig getur fjárhagslegur ójöfnuður haft áhrif á félagslega þátttöku barna og tilfinningu þeirra fyrir að tilheyra hópnum. Auðvitað þurfa börn hvorki dýrar gjafir né íburðarmikla jólamáltíð til að eiga gleðileg jól. Ást, hlýja og samvera verða ekki metin í krónum. En sú staðreynd má ekki verða til þess að við gerum lítið úr þeim áhrifum sem fjárhagslegar þrengingar geta haft á fjölskyldulífið. Foreldrar geta lagt sig alla fram við að skapa börnum sínum fallegar minningar, en samt staðið frammi fyrir því að fjárhagurinn takmarki möguleika þeirra. Vandinn er ekki skortur á umhyggju, heldur þær ójöfnu aðstæður sem fjölskyldur búa við. Þess vegna eigum við ekki aðeins að spyrja hvað börnin fái um jólin, heldur hvaða samfélag við búum þeim alla daga ársins. Jólunum lýkur, en óvissan situr eftir Desemberuppbótin er mörgum kærkomin, en hún nær ekki til allra sem þurfa á fjárhagslegum stuðningi að halda. Rétturinn byggist meðal annars á kjarasamningum, starfstíma og reglum lífeyris- og bótakerfa, fremur en raunverulegri framfærsluþörf einni saman. Margir elli- og örorkulífeyrisþegar eiga rétt á slíkum greiðslum, en námsmenn sem framfleyta sér eingöngu með námslánum fá ekki desemberuppbót vegna námsins. Þeir geta því þurft að skuldsetja sig til að standa undir daglegri framfærslu, með skuldbindingum sem kunna að fylgja þeim áratugum saman. Þetta vekur áleitnar spurningar um hvort stuðningskerfin taki nægilegt mið af raunverulegum aðstæðum fólks. Síðan kemur janúar. Fyrir þau heimili sem þegar eiga erfitt með að ná endum saman er nýtt ár ekki endilega nýtt upphaf, heldur framhald sömu áhyggna. Jólin eiga að vera tími gleði, hlýju og samveru og auðvitað eigum við að fá að njóta þeirra. En í allri þeirri gleði megum við ekki gleyma þeim sem mæta hátíðinni með áhyggjur af afkomu sinni og fjölskyldunnar. Umhyggja okkar fyrir hvert öðru má ekki einskorðast við jólin, heldur þarf hún að endurspeglast í því hvernig við byggjum samfélagið og forgangsröðum sameiginlegum fjármunum. Það er því nauðsynlegt að stjórnvöld og sveitarfélög horfi ekki aðeins til þess hversu mikið sparast með niðurskurði og gjaldahækkunum, heldur einnig hverjir bera afleiðingarnar. Stuðningskerfin þurfa að taka mið af raunverulegum lífsaðstæðum fólks, því fjárhagsleg ábyrgð felst ekki eingöngu í því að gæta að útgjöldum hins opinbera, heldur einnig í því að tryggja að fólk geti lifað með reisn. Höfundur er meistaranemi í Félagsráðgjöf til starfsréttinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jól Félagsmál Fjármál heimilisins Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun