Innlent

Skatt­lagning á er­lenda tæknirisa enn til skoðunar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að verið sé að skoða skattlagningu á erlenda tæknirisa en að aðgerðir í öðrum löndum hafi skilað misjöfnum árangri.
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að verið sé að skoða skattlagningu á erlenda tæknirisa en að aðgerðir í öðrum löndum hafi skilað misjöfnum árangri. Vísir/Einar

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að verið sé að meta hvaða aðgerðir myndu raunverulega skila árangri þegar kemur að skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Aðgerðaleysi ríkisstjórnar í málinu hefur  verið gagnrýnt en ráðherra segir að unnið verði að málinu í vetur.

Tæpt ár er síðan Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra boðaði slíka skattlagningu en á dögunum gagnrýndi Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Sýn, að enn hafi engar aðgerðir verið kynntar.

Sagði hann að fjölmiðlafyrirtæki yrðu að geta treyst boðuðum aðgerðum og kallar eftir því að brugðist sé við en málið er ekki á þingmálaskrá stjórnvalda.

„Stjórnvöld lögðu ríka áherslu á að styrkja íslenska fjölmiðla. Að enn liggi hvorki fyrir greiningar né tillögur í þeim efnum samræmist engan veginn því sem boðað var. Hvað skýrir þessa töf á einum mikilvægasta lið aðgerðaáætlunarinnar þegar önnur ríki hafa þegar byrjað að skattleggja tæknirisana og það fyrir mörgum árum?“ spyr Guðmundur í aðsendri grein á Vísi.

Í grein hans kemur jafnframt fram að samkvæmt Hagstofu Íslands hafi runnið tæpir 15 milljarðar króna til erlendra miðla vegna auglýsingakaupa árið 2024, eða 51 prósent alls auglýsingafjár.

„Erum fyrst og fremst að kanna hvaða lausnir myndu henta hér“

Daði Már Kristófersson segir að unnið hafi verið að því að fara yfir hvernig önnur lönd hafi ráðist að þessum vanda sem skapi erfiða stöðu fyrir íslenska miðla sem og íslenskar auglýsingastofur.

„Sum ríki hafa gripið til aðgerða en árangur þeirra hefur verið mjög mismunandi. Þetta er ekki séríslenskt vandamál heldur sá raunveruleiki okkar að mikið af þjónustuviðskiptum okkar við þessa risa sem eru ekki með starfsemi á Íslandi sem við getum náð til, einfaldlega vegna þess að þetta er allt í hinum rafræna heimi,“ segir Daði Már í samtali við fréttastofu.

„Þarna þurfum við að meta, ekki bara fara í aðgerðir aðgerðanna vegna, heldur að fara í aðgerðir sem raunverulega skila árangri og þar erum við fyrst og fremst að kanna hvaða lausnir myndu henta hér.“

Aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað þeim löndum sem ætla sér að skattleggja bandarísk tæknifyrirtæki 100 prósenta tollum og að slík ákvörðun myndi fella úr gildi alla tvíhliða viðskiptasamninga við Bandaríkin.

Daði segir að unnið verði að málinu í vetur. Þó að allir aðilar séu í raun sammála um prinsippið í málinu þá sé það ekki svo einfalt að búa til lög.

„Við erum að vinna þetta í vetur,“ segir Daði Már.

„Þessi starfsemi fer að einhverju leyti fram utan okkar lögsögu og við þurfum þess vegna að horfa til lausna sem raunverulega virka. Þannig að þú hafir raunverulega áhrif á þennan markað.“

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla

Logi Einarsson, menningar,- nýsköpunar og háskólaráðherra, kynnir tillögur að aðgerðum í málefnum fjölmiðla á blaðamannafundi klukkan 14. Fylgjast má með kynningu hans í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×