Fótbolti

Ída Marín og Guð­rún skoruðu í stór­sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guðrún Arnardóttir setti eitt í dag.
Guðrún Arnardóttir setti eitt í dag. Getty/Judit Cartiel

Ída Marín Hermannsdóttir og Guðrún Arnardóttir skoruðu sitt markið hvor í 7-0 stórsigri Hammarby á Uppsala í sænsku úrvaldeildinni í fótbolta í dag.

Íslensku landsliðskonurnar skoruðu báðar í fyrri hálfleik. Guðrún kom Hammarby yfir á 13. mínútu áður en Ída Marín tvöfaldaði forystuna á 30. mínútu og lögðu þær þannig grunninn að 7-0 stórsigri.

Með sigrinum komst Hammarby í 59 stig og er liðið nú fimm stigum á eftir Häcken, sem getur tryggt sér meistaratitilinn með sigri á Kristianstad á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×