Brentford bjargaði United frá fallsæti Valur Páll Eiríksson skrifar 31. október 2026 17:01 Igor Thiago var á skotskónum. Getty Nóg var um að vera um miðjan dag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigur Brentford á Nottingham Forest gerði að verkum að Manchester United er fyrir ofan fallsvæðið.
Brentford vann 2-0 sigur á Nottingham Forest á heimavelli í dag þar sem Serbinn Nikola Milenkovic skoraði sjálfsmark eftir hálftíma leik og brasilíski framherjinn Igor Thiago innsiglaði sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok. Brentford fer með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar með 14 stig, aðeins stigi frá Liverpool sem er sæti ofar en Liverpool á þó leik inni gegn Arsenal á morgun. Nottingham Forest er áfram í fallsæti, því nítjánda í deildinni, með sex stig og hefur spilað fimm leiki í röð án sigurs. Sigur hjá strákum Lampards Forest er sæti fyrir ofan Sunderland sem var að spila sjötta leikinn í röð án sigurs og hefur þar af tapað fimm. Nýliðar Coventry unnu sinn þriðja leik í vetur er þeir lögðu Sunderland 3-1 á heimavelli í dag. Mörk Japanans Tatsuhiro Sakamoto, Taiwo Awoniyi og Jack Rudoni dugðu fyrir sigrinum og vítaspyrnumark Enzo Le Fée fyrir Sunderland lítið annað en sárabót. Coventry hafði tapað tveimur í röð fyrir leik dagsins en er nú með níu stig í 15. sæti. Sjötti sigur Bournemouth í röð Gott gengi Bournemouth heldur þá áfram en liðið vann 2-0 sigur á Leeds á heimavelli þökk sé mörkum Brassans Evanilson og Marokkóans Amine Adli. Bournemouth hefur unnið sex leiki í röð í öllum keppnum og ekki fengið á sig mark. Markatalan 16-0 í síðustu sex leikjum hjá eldheitum kirsuberjum af suðurströndinni. Bournemouth fór upp í sjöunda sæti með tólf stig en sigurinn var sá þriðji í röð í deildinni, og það eftir að hafa ekki unnið neinn af fyrstu sex leikjunum. Leeds er með ellefu stig í níunda sæti. Jafnt í nýliðaslagnum Hull City og Ipswich Town skildu þá jöfn, 2-2, í nýliðaslag í Hull. Portúgalski miðjumaðurinn Florentino Luis kom Ipswich yfir um miðjan fyrri hálfleik og staðan 1-0 í hálfleik. Tim Iroegbunam og Oli McBurnie sneru leiknum við með sitthvoru markinu á tíu mínútna kafla í síðari hálfleiknum en Julio Enciso bjargaði stigi fyrir Ipswich með marki korteri fyrir leikslok. Bæði lið eru með 11 stig í deildinni, Hull situr í áttunda sæti en Ipswich í því tólfta með sama stigafjölda. Tveir leikir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tottenham mætir Crystal Palace klukkan 17:30 og Aston Villa tekur á móti Fulham klukkan 20:00. Báðir leikir verða í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Enski boltinn Brentford FC Nottingham Forest Sunderland AFC Coventry City FC AFC Bournemouth Leeds United Hull City AFC Ipswich Town FC Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Crystal Palace | Heimamenn geta losað sig af botninum Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjá meira