Enski boltinn

Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield

Sindri Sverrisson skrifar
Eiður glotti þegar hann sá í hvað stefndi í spurningum Hjörvars sem sór af sér allar syndir.
Eiður glotti þegar hann sá í hvað stefndi í spurningum Hjörvars sem sór af sér allar syndir. Sýn Sport

Eiður Smári Guðjohnsen á bæði ljúfar og sárar minningar frá Anfield eins og hann rifjaði upp á vellinum í dag á stórleik Liverpool og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Eiður og Hjörvar Hafliðason ræddu saman fyrir leik um hið einstaka andrúmsloft sem myndast á Liverpool-leikjum á Anfield og rifjuðu líka upp minningar Eiðs af vellinum.

Klippa: Eiður á súrar og sætar minningar af Anfield

„Ég held að það sé bara samheldnin í fólki. Samheldnin og þessi ótrúlega ástríða fyrir sínu félagi. Maður finnur það bara. Þegar maður kemur hér sem andstæðingur veit maður að maður er ekki bara að eiga við fótboltamenn heldur við allt fólkið hérna uppi í stúku líka. Þetta er einsdæmi,“ sagði Eiður en þeir Hjörvar voru í beinni útsendingu á Sýn Sport vegna stórleiksins í dag. Arsenal vann leikinn 1-0 eftir fjórtán ára bið eftir sigri á Anfield í deildarleik.

Hjörvar bað Eið að rifja upp sína bestu minningu frá Anfield en Eið grunaði svo sem strax hvað Hjörvar vildi einnig rifja upp.

„Ég hafði aldrei skorað á Anfield fyrir Chelsea en kom hérna með Barcelona og skoraði í Meistaradeildinni. Því miður var það ekki nóg til að koma okkur áfram en samt einstakt,“ sagði Eiður áður en talið barst að færinu sem hann fékk fyrir Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu árið 2005. Færi sem stuðningsmenn Chelsea og Liverpool gleyma seint því hefði Eiður skorað þá hefði Liverpool ekki landað Evrópumeistaratitlinum með sigri á AC Milan í ógleymanlegum úrslitaleik.

„Takk fyrir að minna mig á það,“ sagði Eiður léttur en fólkið í Liverpool er honum ævinlega þakklátt:

„Þetta er ótrúlegt. Þegar ég kem hingað, og ég hef komið nokkrum sinnum í þessari vinnu… það er svo mikið þakklæti í fólkinu. „Takk fyrir að klúðra þessu færi!“ Svona er þetta bara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×