Innlent

Mann­dráps­mál, elti­hrellir og sögu­leg kaup

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöldi í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Lögreglan staðfestir að málið tengist einhvers konar uppgjöri en sonurinn er grunaður um að hafa stungið tvo menn með þeim afleiðingum að annar þeirra lést.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en grunur er um að mennirnir tveir hafi reynt að kúga þann sem stakk þá til fjár.

Í morgun hófst aðalmeðferð í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur en hún sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti. Við verðum í beinni úr dómssal í fréttatímanum en dómari hafnaði kröfu Írisar Helgu um að réttarhöldin færu fram fyrir luktum dyrum.

Þá fór fram þingfesting í sögulegu máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem sjötíu og einn sætir ákæru í Landsbankamálinu svokallaða. Ákærðu er skipt í hópa en þeir eru sakaðir um umfangsmikil fjársvik og peningaþvætti.

Mikil spenna er fyrir þingkosningunum í Bandaríkjunum á morgun en í gær tilkynnti ein þingkona Demókrata að hún ætlaði sér að styðja frambjóðanda andstæðinganna úr Repúblikanaflokknum.

Hin sögufræga verslun Fjarðarkaup hefur verið seld en Samkaup munu taka við rekstrinum. Rætt verður við forstjóra móðurfélags Samkaupa í hádegisfréttum.

Í íþróttum heyrum við í Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara í handbolta, en Ísland mætir Úkraínu í undankeppni EM í vikunni. Þá verður farið yfir frammistöðu Sveindísar Jane Jónsdóttur í bandarísku deildinni sem og stórleik gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 2. október 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×