Skoðun

Þegar veikinda­leyfi verður að fríi

Gunnar Ármannsson skrifar

Í umræðu um uppsagnir hjá Reykjavíkurborg rakst ég á athugasemd þar sem lagt var til að safna upplýsingum um aðstæður þeirra sem misstu vinnuna. Kanna mætti kynjahlutföll, aldursdreifingu, starfsaldur og ýmislegt fleira sem gæti varpað ljósi á hvernig staðið hefði verið að vali starfsfólks til uppsagnar. Innan um þessi atriði var spurt hve margir hefðu viðrað við næsta yfirmann að þeir þyrftu á „afmörkuðu veikindaleyfi að halda á næstunni“.

Við þetta staldraði ég.

Það getur auðvitað verið fullkomlega eðlilegt að starfsmaður viti fyrirfram að hann verði óvinnufær um tíma. Aðgerð er fyrirhuguð, meðferð stendur fyrir dyrum eða þekktur sjúkdómur gefur tilefni til að gera ráðstafanir. Sama getur átt við þegar heilsan hefur farið versnandi og starfsmaður sér að hann getur ekki haldið áfram óbreyttu vinnuframlagi. Þá er skiljanlegt að ræða væntanlega fjarveru við vinnuveitanda og slíkur trúnaður á ekki að verða starfsmanni að falli.

En ef engin heilsufarsleg ástæða liggur fyrir, hvað merkir þá að þurfa afmarkað veikindaleyfi á næstunni? Veikindi eru ekki eitthvað sem við ráðstöfum eftir hentugleika. Fyrirsjáanleg fjarvera vegna þeirra á sér skýringu í heilsufari eða meðferð. Án slíkrar ástæðu hlýtur að vakna spurning um hvort verið sé að tala um annars konar leyfi undir nafni veikinda.

Ég veit ekki hvað höfundur athugasemdarinnar hafði í huga. Færslan gefur engan grundvöll til að saka viðkomandi starfsmenn um misnotkun og af henni verður ekkert ráðið um hvort veikindi hafi haft áhrif á val fólks til uppsagnar. En setningin vakti hjá mér spurningu um annað og almennara fyrirbæri sem ég kannast við úr eigin starfsreynslu.

Í störfum mínum hef ég kynnst því viðhorfi að veikindaréttur sé eins konar inneign. Starfsmaður hafi áunnið sér ákveðinn rétt og geti því gengið á hann þegar honum þykir þörf á tímabundnu hléi frá vinnu, jafnvel þótt veikindi valdi ekki óvinnufærni. Þetta er því miður ekki ný hugsun fyrir mér og mér finnst löngu tímabært að ræða hana opinskátt. Þegar þannig er hugsað verður spurningin hvort maður eigi ekki inni veikindaleyfi, fremur en hvort maður sé óvinnufær vegna veikinda.

Veikindaréttur er ein af mikilvægustu stoðum öryggis launafólks. Hann gerir fólki kleift að takast á við veikindi án þess að tekjumissir bætist samstundis við heilsuvandann. Sá sem veikist á ekki að þurfa að velja milli afkomu sinnar og nauðsynlegrar meðferðar. Það skiptir því miklu að fólk geti nýtt rétt sinn án óeðlilegrar tortryggni og að skilningur sé á því að veikindi geta haft ólíkar birtingarmyndir.

Sá sem getur gengið um bæinn, hitt vini eða farið út að hlaupa getur eftir sem áður verið óvinnufær. Bataferli getur kallað á virkni fremur en einangrun og enginn ætti að draga ályktanir um réttmæti veikindaleyfis út frá því einu sem sést utan vinnustaðar. Umræðan hér snýst um það viðhorf að hægt sé að ákveða að nýta veikindaleyfi án þess að heilsufarsleg ástæða sé fyrir hendi.

Óánægja í starfi getur verið raunveruleg, álag mikið og þörf fyrir hvíld brýn. Stundum verður álagið svo alvarlegt að það veldur veikindum og óvinnufærni. Þá á veikindarétturinn að gegna sínu hlutverki. En allar ástæður þess að fólk vilji komast tímabundið frá vinnu verða ekki þar með að veikindum. Orlof, sveigjanlegur vinnutími og samkomulag um leyfi hafa líka sínu hlutverki að gegna. Við leysum ekki allan vanda vinnustaða með því að færa hann undir veikindi.

Ábyrgðin á því að halda þessum mörkum skýrum hvílir líka á stjórnendum. Ef stjórnendur sjálfir fara að líta á veikindaleyfi sem almenna lausn á þörf fyrir frí eiga þeir þátt í að festa þann skilning í sessi. Það verður dálítið erfitt að ætlast til þess að starfsfólk geri greinarmun sem stjórnendur hafa sjálfir látið hjá líða að gera. Á sama tíma þurfa verkefnin áfram að vinnast og fjarveran getur aukið álag á samstarfsfólk eða dregið úr þjónustu. Það er því engum greiði gerður með því að láta mörkin smám saman hverfa.

Mér finnst þó alvarlegast hvernig þetta getur grafið undan trausti. Ef veikindaréttur er meðhöndlaður sem almennur frítökuréttur skapast hætta á að tortryggnin beinist líka að þeim sem þurfa raunverulega á honum að halda. Fólk sem glímir við alvarleg eða langvinn veikindi getur þá þurft að bera þann viðbótarbagga að finna að frásögn þess sé tekin með fyrirvara. Það er ósanngjarnt gagnvart fólki sem hefur ekkert annað til saka unnið en að veikjast.

Ég þekki af eigin raun hvað það skiptir máli að geta treyst á stuðning þegar heilsan bregst. Þess vegna finnst mér nauðsynlegt að ræða þetta af hreinskilni. Veikindarétturinn þarf að vera sterkur og fólk þarf að geta nýtt hann þegar þörfin kemur. Til þess þurfum við líka að geta sagt að veikindaréttur sé ekki inneign sem eðlilegt sé að ganga á án tillits til heilsufars. Með því stöndum við vörð um réttinn og þá sem þurfa á honum að halda.

Höfundur er lögmaður.




Skoðun

Sjá meira


×