Menning

Góðir straumar á Straumi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Það var stuð og stemming á Straumi á föstudaginn.
Það var stuð og stemming á Straumi á föstudaginn. Eygló Gísladóttir

Íslenski dansflokkurinn frumsýndi sýninguna Straum á föstudaginn en þar sýndu fjórir ólíkir danshöfundar verk sín. Fjöldi fólks mætti á frumsýninguna, þar á meðal þekkt nöfn úr dans- og sviðslistaheiminum.

Straumi er lýst sem fjölbreyttri kvöldstund þar sem fjórir upprennandi danshöfundar, valdir úr hópi 120 umsækjenda, leiddu áhorfendur um ólíka heima samtímadansins. Verkin fjögur beina öll sjónum að mannlegu eðli en út frá ólíkum sjónarhornum og er útkoman eins konar hlaðborð af samtímadansi.

Verkin fjögur eru: Blue Wall eftir finnska danshöfundinn Leevi Mettinen, Imaarunneq eftir grænlensk-danska danshöfundinn Söruh Aviaja Hammeken, Skjálftavaktin eftir íslenska danshöfundinn Sóleyju Ólafsdóttur og Briefly Gorgeous eftir japansk-bandaríska danshöfundinn Hiroki Ichinose.

Fjölmennt var á frumsýningunni og fangaði Eygló Gísladóttir stemminguna á mynd. Sýningin verður sýnd þrisvar til viðbótar, dagana 14., 21. og 27. nóvember næstkomandi.

Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir.Eygló Gísladóttir

Anna Rún Frímannsdóttir ásamt dóttur sinni Birtu Dís Magnúsdóttur og vini.Eygló Gísladóttir

Kara Hergils og Sarah Aviaja Hammeken, einn danshöfunda kvöldsins.Eygló Gísladóttir

Ingibjörg Björnsdóttir og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, listdansstjóri Íslenska dansflokksins.Eygló Gísladóttir

Kara Hergils og Álfgrímur Aðalsteinsson.Eygló Gísladóttir

Glæsilegir frumsýningargestir úr sviðslistabransanum.Eygló Gísladóttir

Áskell Harðarson ásamt góðum vini.Eygló Gísladóttir.

Hjónin Árni Kristjánsson og Guðrún Ósk Maríasdóttir.Eygló Gísladóttir

Curro Rodriguez Sanchez og Juan M. Melero.Eygló Gísladóttir

Kara Hergils og Björgvin Sigurðarson.Eygló Gísladóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.