Lífið

„Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Hvatvísin tók völd fyrir tíu árum þegar Áki Frostason truflaði beina útsendingu Ríkisútvarpsins á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins og spurði hvers vegna fólk héldi áfram að gefa ránfuglinum að borða.
Hvatvísin tók völd fyrir tíu árum þegar Áki Frostason truflaði beina útsendingu Ríkisútvarpsins á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins og spurði hvers vegna fólk héldi áfram að gefa ránfuglinum að borða.

Áki Frostason var á flakki á milli kosningavaka á Akureyri eftir alþingiskosningarnar árið 2016, sjokkeraður yfir fyrstu tölum, þegar hann tók skyndiákvörðun og truflaði viðtal í beinni útsendingu við þingmenn Sjálfstæðisflokksins og sagði: „Af hverju man enginn hrunið og Tortóla? Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Síðan eru tíu ár liðin og margt breyst.

Síðastliðinn fimmtudag voru akkúrat tíu ár liðin frá kosningum til Alþingis árið 2016 og í tilefni af því fjallaði Vísir um Píratana sem fóru með himinskautum í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar. 

Sjá einnig: Hvar eru Píratarnir sem fóru með himin­skautum?

Sama dag voru liðin tíu ár frá því að Áki nokkur Frostason truflaði viðtal fréttamanns Rúv við Sjálfstæðismennina Kristján Þór Júlíusson og Njál Trausta Friðbertsson í einu eftirminnilegasta augnabliki í íslensku kosningasjónvarpi.

Áki er myndlistar- og tónlistarmaður að norðan sem hefur starfað vítt og breitt um heiminn undanfarin ár. Hann hefur aldrei tjáð sig um uppákomuna umtöluðu í fjölmiðlum en ræddi við blaðamann Vísis í tilefni tíu ára afmælisins.

Hætti að vera fyndið þegar fyrstu tölur bárust

„Þetta átti sér að einhverju leyti smá aðdraganda. Kosningarnar voru sérstakar enda hafði Sigmundur Davíð þarna hrökklast úr embætti út af Panamaskjala­skandal­num. Við vorum tveir félagar á Akureyri, báðir listamenn, sem opnuðum vikuna fyrir kosningar okkar eigin kosningaskrifstofu fyrir Framsóknarflokkinn, heima hjá mér í miðbænum á Akureyri, sem kaldhæðnisádeilu á flokkinn,“ segir Áki um aðdragandann að augnablikinu fræga.

Áki er myndlistar- og tónlistarmaður.

„Við vorum búnir að gera plakat fyrir kosningaskrifstofuna, klæddum okkur upp að bændasið og fórum þannig á milli flokka á Akureyri sem ungir Framsóknarmenn,“ segir hann um kosningakvöldið.

Þeir vinirnir voru staddir á kosningavöku á raunverulegri kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins á Akureyri með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni flokksins og oddvita kjördæmisins, þegar fyrstu tölur bárust.

„Konan hans Sigmundar tók mynd af okkur með Sigmundi Davíð hálftíma áður en þetta gerðist. Við héldum að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn myndu ekki fá neitt en svo komu fyrstu tölur og þá sáum við að þeir flokkar voru að fá massafylgi eftir allt sem á undan hafði gengið. Þá fannst okkur gjörningurinn ekkert fyndinn lengur,“ segir Áki.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti milli kosninga við sig rúmum tveimur prósentum, fékk 29 prósent atkvæða og 21 þingmann kjörinn á meðan Framsóknarflokkurinn fékk skell og helmingaði fylgi sitt en fékk samt sem áður 11,5 prósent og átta þingmenn.

„Við römbuðum út af kosningavöku Framsóknar, tókum af okkur nælurnar, köstuðum þeim í ruslið og vorum á leiðinni heim frekar sjokkeraðir yfir tölunum. Svo löbbuðum við framhjá kosningavöku Sjálfstæðisflokksins og ég sagði við vin minn: „Eigum við ekki að fara þarna inn og sjá hvað er að gerast þar?“,“ segir Áki.

„Nei, ég held að það sé ekki góð hugmynd, þú átt örugglega eftir að gera eitthvað heimskulegt,“ hafi vinurinn svarað honum.

„Ég get farið inn í þetta viðtal og sagt eitthvað“

„Þannig að ég fór einn, ennþá klæddur eins og bóndi í sveitalegum stíl, inn á kosningaskrifstofuna hjá Sjálfstæðisflokknum og sá að það var að hefjast viðtal við Kristján Þór að fara að hefjast, þar sem hann síðan lýsir því hvað hann er ánægður með fyrstu tölurnar,“ segir Áki.

„Þá tók ég bara skyndiákvörðun og hugsaði með mér: „Ég get farið inn í þetta viðtal og sagt eitthvað.“ Svo kom þessi lína í hausinn á mér þar sem ég líkti fálka Sjálfstæðisflokksins við ránfugl, labbaði beint að myndavélinni, sagði þetta og svo ýtti Kristján Þór mér í burtu á frekar klaufalegan hátt.“

Áki segist ekki hafa fattað um leið hvað hann hefði verið að gera, það er trufla beina útsendingu í sjónvarpi allra landsmanna með pólitískri yfirlýsingu.

„Ég labbaði út nánast um leið eftir þetta enda var fólkið þarna ekkert sérstaklega ánægt með mig. Strax á leiðinni í gegnum bæinn kallaði fólk á mig: „Varst þetta þú í sjónvarpinu?“ Þá rann upp fyrir mér að þetta hefði verið í beinni útsendingu fyrir framan alla á landinu,“ segir Áki.

„Daginn eftir var einhver búinn að hlaða upp broti úr þessu á samfélagsmiðla og það voru tvö hundruð þúsund manns búnir að horfa á það. Svo höfðu allir fjölmiðlar samband við mig en ég tók þá afstöðu að fara ekki í viðtöl.“

Hann hafi af óljósri hugsjón verið harður á því að gera það ekki.

„Síðan fattar maður seinna meir hvað lífið er stutt og þannig tækifæri gefast ekki oft. Ég hefði sennilega farið í einhver viðtöl ef þetta hefði gerst í dag,“ segir hann.

„Hefðirðu gert þetta í Mexíkó værirðu dauður núna“

Áki fór beint heim af kosningavökunni en hann bjó á þeim tíma með tveimur vinum sínum. Annar þeirra er mexíkóskur og sagði við hann: „Hvað varstu að spá? Hefðirðu gert þetta í Mexíkó værirðu dauður núna.“

„Maður fattaði þá að það eru viss forréttindi fólgin í því að geta tjáð sig beint fyrir framan einhvern ráðherra og talað í myndavél án þess að vera hræddur um að vera barinn, drepinn eða að einhver hóti fjölskyldu manns. Auðvitað geta einhver smá leiðindi skeð og maður fengið skítkast ef maður gerir eitthvað svona opinberlega, meira að segja á Íslandi, en það er ekki þannig að maður sé hræddur um líf sitt,“ segir Áki.

Áki gerði sér í fyrstu ekki grein fyrir merkingu gjörningsins.

Hann hafi í gegnum þetta ferli líka hugsað með sér hvað aktívismi sem þessi geti haft mikla þýðingu í lýðræðissamfélagi.

„Fólk tekur venjulega þátt í pólitík á landsvísu einu sinni á fjögurra ára fresti. En það getur líka verið bindandi að þú hafir ekkert að segja nema á fjögurra ára fresti þegar þú kýst einhvern flokk eða frambjóðanda. Þú getur gert það allt þitt líf og þinn flokkur aldrei komist til valda,“ segir Áki.

„Ég vil þess vegna alltaf hvetja fólk til að vera skapandi í pólitík og gera eitthvað, hvort sem það er í gegnum list eða aktívisma - það þarf alls ekkert að vera neitt ólöglegt. Það getur jafnvel haft meira praktískt vægi pólitískt séð heldur en að greiða atkvæði,“ bætir hann við.

„Ég held að stjórnmálafólk almennt vilji að almenningi leiðist og taki lítinn þátt í pólitík nema á þessu tímabili þegar stjórnmálafólkinu hentar. Síðan vilja þau fá að vinna í friði. En ég held að í lýðræðissamfélagi beri almenningur ábyrgð á því að halda stjórnmálafólki á tánum. Þessi pólitíska leti hefur sýnt sig því í dag mega stjórnmálamennkomast upp með nánast hvað sem er án þess að vera vísað úr embætti.“

Prófílmynd, Áramótaskaup og rokkstjarna í Reykjavík

Áki segir flesta hafa tekið vel í gjörninginn, raunar lenti hann bara einu sinni í leiðindum út af málinu. Hins vegar hafi það leitt af sér ýmislegt skemmtilegt.

„Illugi Jökulsson, sem mér fannst skemmtilegur útvarpsmaður, var með andlitið mitt sem prófílmynd í langan tíma, sem ég hafði mjög gaman af. Svo var minnst á þetta í Áramótaskaupinu,“ segir Áki.

Reykvíkingar komu fram við Áka eins og rokkstjörnu eftir gjörninginn.

„Ég bjó náttúrulega á Akureyri og fékk yfirleitt mjög góðar viðtökur, ég man ekki eftir nema kannski einu atviki þar sem einhver var dónalegur eða mjög ósáttur í raunheimum. Ætli hann hafi ekki verið Sjálfstæðismaður, gaurinn sem ég hitti á bar sem vildi aðeins leyfa mér að heyra það,“ bætir hann við.

„Annars fór ég nokkrum vikum eftir þetta að spila á tónleikum í Reykjavík. Þá var þetta nánast eins og maður væri rokkstjarna, fólk vildi taka af mér myndir og ég kunni ekki alveg inn á þann pakka. En ég reyndi eftir fremsta megni að vera alþýðlegur í kringum þetta. Það er kannski alveg minn stíll að vera í svoleiðis stjörnupakka en ég hafði gaman af því,“ segir hann.

Stendur á tímamótum og óttast popúlismann

Síðustu tíu ár hefur Áki starfað sem listamaður og búið mikið erlendis vegna vinnunnar. Hann reynir að vera pólitískur í gegnum listina.

„Ég er oft eitthvað að brasa hálfpólitískt. Ég setti upp legstein fyrir Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri. Það var pólitísk ákvörðun að hún skyldi vera rifin, þetta var gamaldags og krúttleg leigubílastöð niðri í bæ á Akureyri sem mörgum þótti vænt um. Þetta var algjört kennileiti og mér þótti vænt um þennan stað,“ segir Áki.

Áki með legsteininn.

„Þannig að mér datt í hug að reisa þarna legstein sem ég held að standi enn. Meira að segja skilst mér að það séu einhverjir leiðsögumenn sem fara þarna til að sýna ferðamönnum legsteininn,“ bætir hann við.

„Ég er alltaf að snúast í einhverju þannig en svo hef ég verið að vinna dálítið mikið erlendis. Ég er sjálfstætt starfandi listamaður og er stöðugt í verkefnum hér og þar, residensíum og sýningum. Svo starfa ég líka sem tónlistarmaður undir nafninu Pitenz þannig að það er alltaf nóg að gera.“

Áki stendur á tímamótum því hann flytur á næstunni aftur til landsins eftir að hafa ekki verið með fast heimili um árabil.

„Ég er að flytja á Hjalteyri. Ég hef ekki búið á föstum stað í sex-sjö ár, það verður smá viðbrigði að vera kominn með fast heimili,“ segir Áki um fámennt sveitaþorpið í Eyjafirðinum.

„Það opnar pínu á Norðurland að núnar er komið þangað alþjóðaflug á veturna þannig það er ekkert mál að fljúga út í verkefni.“

Hvernig blasir pólitíkin við þér í dag?

„Eins og vill gerast er ég dottinn dálítið út úr íslensku pólitíkinni en í heimspólitíkinni finnst mér agaleg popúlísk slagsíða í gangi. Þessi popúlismi finnst mér vera svo ótrúlega erfitt fyrirbæri og maður sér hann skríða inn í flest lönd, þar með talið Ísland,“ segir Áki.

„Mér sýnist Miðflokkurinn helst beita þessari taktík í sinni pólitík sem mér finnst vera algjör lágkúra. Ég er alveg óhræddur við að segja það,“ segir hann.

„Annars er ég ekki mjög mikið inni í íslenskri pólitík en vonandi breytist það þegar maður flytur aftur til Íslands. Mér finnst alltaf gaman að taka þátt að einhverju leyti og á örugglega eftir að vera með í einhverjum aktívisma á Norðurlandi þegar ég verð kominn þangað.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.