Fótbolti

Bein út­sending: Arnar kynnir landsliðshópinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn
Arnar Gunnlaugsson í Tallinn Vísir/Getty

Arnar Gunnlaugsson opinberar landsliðshóp karla í fótbolta fyrir komandi leiki í Þjóðadeild karla í höfuðstöðvum KSÍ klukkan 13:15.

Vísir verður í beinni frá fundinum og fær Arnar svo í viðtal í beinni útsendingu beint í kjölfarið.

Nokkrir eru tæpir vegna meiðsla og verður áhugavert að sjá hvernig valið verður.

Fram undan eru tveir síðustu leikir Íslands í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Ísland sækir fyrst Búlgaríu heim og fær svo Lúxemborg í heimsókn á Laugardalsvöll.

Bein útsending hefst upp úr klukkan 13:10 og fundurinn sjálfur fimm mínútum síðar. Útsendinguna má nálgast í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×